Fjórir stungnir á fjölfarinni götu í London – Sjö menn í haldi lögreglu

Sjö menn hafa verið handteknir eftir hörð átök glæpagengja á fjölfarinni verslunargötu í suðausturhluta London síðdegis í gær. Fjórir menn voru fluttir á sjúkrahús með stungusár og er einn þeirra í lífshættu.

Fjöldi vegfarenda flúði af vettvangi og leitaði skjóls í nærliggjandi verslunum þegar átökin brutust út skömmu eftir klukkan tvö. Lögregla girti stóran hluta götunnar af og þyrla var send á staðinn.

Auglýsing

Átökin hófust við skyndibitastað

Þegar lögregla og sjúkraflutningamenn komu á vettvang fundu þeir fjóra menn með stungusár.

Vitni segja átökin hafa hafist inni á eða við KFC veitingastað áður en þau færðust út á götu og inn í húsasund. Starfsfólk nærliggjandi fyrirtækja læsti dyrunum á meðan fólk flúði undan átökunum.

Einn verslunarstarfsmaður sagðist hafa heyrt mikinn hvell áður en fólk flúði frá veitingastaðnum. Eldri kona hefði komið grátandi inn í verslunina og beðið starfsfólkið um að læsa dyrunum.

Sjö menn enn í haldi

Allir fjórir særðu voru fluttir á sjúkrahús. Þrír þeirra eru með áverka sem ekki eru taldir lífshættulegir en sá fjórði er í alvarlegu ástandi.

Sjö menn voru handteknir vegna málsins og voru þeir allir enn í haldi lögreglu síðdegis. Ekki hefur verið upplýst um aldur mannanna, en talið er líklegt að um einhverskonar undirheimauppgjör hafi verið að ræða.

Lögreglan segir rannsókn málsins standa yfir en telur ekki að frekari hætta steðji að almenningi.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing