Íslenski flugmaðurinn Kjartan Norðdahl segir að ljósmynd sem hann tók á Kársnesinu í Kópavogi sýni „skýrt geimskip“. Myndin vakti athygli rithöfundarins Gunnars Dans, sem birti frásögn Kjartans í aðsendri grein og kallar myndina „skýrasta UFO-mynd sem ég hef séð tekna á Íslandi“.
Kjartan hafði verið úti að ganga með hundinn sinn þegar hann var að mynda norðurljósin. Þegar hann stækkaði eina myndina heima við segist hann hafa séð fyrirbæri sem hann telur ekki geta átt sér hefðbundna skýringu.

Tengir atvikið við nýja heimildarmynd
Greinin birtist sama dag og heimildarmyndin Age of Disclosure, í leikstjórn Dan Farah, var frumsýnd vestanhafs. Myndin hefur vakið mikla athygli meðal UFO-áhugamanna og greint er frá því að hún gæti jafnvel verið tilnefnd til Óskarsverðlauna í flokki heimildarmynda.
Í myndinni koma fram 34 fyrrverandi starfsmenn bandaríska hersins, leyniþjónustu og NASA með frásagnir af því sem þeir telja óútskýrð fyrirbæri – og í sumum tilfellum ójarðnesk flygildi. Þar á meðal er Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og þjóðaröryggisráðgjafi forseta, sem heldur því fram í myndinni að óþekktir flughlutir hafi ítrekað sést yfir kjarnorkusvæðum og haft áhrif á tölvukerfi þeirra.
Fullyrðingar um „djúpríki“ og leynd
Gunnar Dan tengir í grein sinni íslensku frásagnirnar við það sem hann kallar „djúpríkisafl“ innan bandarískra öryggisstofnana. Hann heldur því fram að bandarísk stjórnvöld, herinn og hergagnafyrirtæki hafi í áratugi beitt leynd, stimplun og sálfræðihernaði til að gera UFO-mál ótrúverðug í almennri umræðu.
Hann nefnir einnig að undanfarin þrjú ár hafi háttsettir starfsmenn hersins og leyniþjónustu borið vitni fyrir Bandaríkjaþingi undir vernd uppljóstraralaga, og að upplýsingar séu nú „farnar að streyma fram“ bæði í hefðbundnum fjölmiðlum og á netinu.
Fleiri íslenskar frásagnir og ný bók á leiðinni
Gunnar Dan segir að hann hafi síðasta árið rætt við fjölda Íslendinga sem telja sig hafa séð óútskýrð fyrirbæri og jafnvel upplifað brottnám. Hann tók nýverið saman bókina UFO101 og segir að efnið sem fram komi í Age of Disclosure „samræmist nákvæmlega kortlagningu“ bókarinnar.
Að hans sögn berast honum vikulega nýjar frásagnir og hann segist þegar sjá fram á að skrifa aðra bók á næsta ári.
Hvetur fólk til að hafa opin huga
Í lok greinarinnar hvetur Gunnar Dan Íslendinga til að „hugsa út fyrir boxið“ og velta fyrir sér stöðu mannkyns í stærra samhengi. „Við erum ekki ein, við höfum aldrei verið það,“ skrifar hann.