Andri Þorvarðarson hefur verið í miðju mikillar umræðu eftir að hann birti pistil þar sem hann gagnrýndi bandaríska íhaldssinnann Charlie Kirk harðlega, meðal annars fyrir fordómafull ummæli í garð svartra.
Nú svarar Andri gagnrýninni sem hann hefur fengið á samfélagsmiðlum og bætir við samhengi sem hann segir sumum hafa vantað.
„Ég vil þakka innilega fyrir þær frábæru viðtökur sem greinin mín hefur fengið,“ skrifar Andri á Facebook, en bætir við að viðbrögðin hafi þó verið „afar skrautleg“ frá sumum sem hafi verið ósáttir.
Segir hann „mishressa einstaklinga“ hafa spammað vegginn sinn svo mikið að hann hafi ákveðið að láta það gott heita.
Tekur á umdeildum tilvitnunum
Andri segist hafa tekið meðvitaða ákvörðun um að hafa fáar beinar tilvitnanir í pistli sínum, en nú vilji hann bæta við eitt atriði sem margir hafi gagnrýnt.
Það snýst um orð hans um að Kirk hafi ekki viljað sitja í flugvél með svörtum flugmönnum og að þau orð hafi verið tekin úr samhengi.
Til að skýra málið birtir Andri nákvæmlega þau orð sem Charlie Kirk lét falla:
„If I see a Black pilot, I’m going to be like, ‘Boy, I hope he’s qualified.’“
Þetta sagði Kirk í umræðu um svokallaða DEI stefnu („Diversity, Equity and Inclusion“), sem snýst um fjölbreytni og jöfnuð.
„Þetta snýst um að neita því að maður sem sagði þessa hluti fái að vera málaður sem saklaus fórnarlamb haturs, án þess að nefna það hatursumhverfi sem hann sjálfur skapaði“
Hann lýsti þar ótta sínum við að svartir flugmenn gætu fengið starf vegna kvóta frekar en hæfni.
Andri bendir á að engin gögn bendi til þess að svartir flugmenn séu síður hæfir og segir að jafnvel þótt kvótar séu umdeilanleg leið, réttlæti það ekki fordóma.
Fyrir þá sem hafa áhuga er hægt að sjá umræðuna sem Kirk var að vitna í hér á síðu Turning Point USA, en þar er verið að vitnað í stefnu United Airlines um að stórlækka hæfniskröfur á flugmenn sína og að helmingur nýrra flugmanna verði að vera konur eða „litað fólk.“
„Kirk gerði ekki ráð fyrir umræðu – hann réðist á fólk“
Í færslunni fer Andri svo yfir önnur ummæli Kirks um svarta þjónustufulltrúa og nafntogaðar konur:
„If I’m dealing with somebody in customer service who’s a moronic Black woman, I wonder is she there because of her excellence, or is she there because of affirmative action?“
„You do not have the brain processing power to otherwise be taken really seriously. You had to go steal a white person’s slot to go be taken somewhat seriously.“
Að mati Andra staðfesta þessi orð það sem hann sagði í upphaflegu greininni: „Fylgismenn hans höfðu aldrei áhuga á hófstilltri umræðu um jafnrétti, þeir notuðu hana til að berja á minnihlutahópum.“
Segir að gagnrýnin staðfesti hið óumdeilda
Andri nefnir einnig að margir gagnrýnendur hans hafi aðeins ráðist á eitt atriði í pistlinum, orðin um flugmanninn, en ekkert annað.
„Má því draga þá ályktun að þeir samþykki að allt hitt sem kom fram í greininni sé satt og rétt,“ segir hann.
Andri: Þetta er ekki um morð – heldur um viðhorf
Að lokum undirstrikar Andri að greinin hans snerist ekki um að réttlæta eða útskýra morðið á Charlie Kirk, heldur að rýna í viðhorfin sem fólk er að reyna að afmá í kjölfarið.
„Þetta snýst um að neita því að maður sem sagði þessa hluti fái að vera málaður sem saklaus fórnarlamb haturs, án þess að nefna það hatursumhverfi sem hann sjálfur skapaði.“