Fór úr 550 þúsund fyrir að skrá niður svefn niður í 350 þúsund fyrir næstum fulla vinnu – „Er eðlilegt að spá í hvort maður hafi efni á að fara að vinna?“

EKKI VINSÆLT UMRÆÐUEFNI, EN MÉR ER DRULL.

Þegar ég kom til Íslands fór ég í VIRK.

Auglýsing

Ekki beint af því að það var eitthvað að mér, heldur vegna aðstæðnanna sem við fjölskyldan fundum okkur í frá einum degi til annars: allslaus, búin að missa allt sem við byggðum upp í nær 2 áratugi, send úr landi, varla stæð í lappirnar, og gátum ekki einu sinni kvatt fólkið okkar.

VIRK greip mig, gaf mér tíma til að finna á mér fæturnar, og kenndi mér m.a að sofa.

Ég gat lítið notfært mér önnur námskeið þar sem ég var ekki í kulnun, með kvíða eða þunglynd.

Það versta sem plagar mig líkamlega er stundum handþurrkur eftir uppvask.

Ég er þeim þó ævinlega þakklát fyrir tímann, leiðsögnina og peppið.

Ráðgjafinn minn var algerlega no-bullshit kona, og ég hugsa til hennar reglulega.

Ég fékk 6 mánaða samning um endurhæfingalífeyri.

Ég fékk 550.000 útborgað á mánuði, sem eftir 20 ár á Afrískum launum er billjónir!

Eftir 2 mánuði gafst ég upp, ég gat ekki réttlætt að vera bara heima og þiggja bætur.

Ég fann mig verða vanvirkari(!) og aumingjalegri og var hreinlega hrædd um að missa niður ‘drævið’ og sjálfstraustið.

Ég hafði allt í einu endalausan tíma til að hugsa og endurhugsa allt.

Mæli ekki með!

Á 3ja mánuði fór ég svo að vinna.

Ég vinn strangheiðarlega vinnu, þar sem eg fæ að aðstoða flottasta fólk landsins við að halda heimili og tækla allskonar verkefni.

Síðan þá fæ ég 350.000 kr útborgað fyrir 80% vinnu.

Eðlilegt?!

Í lagi?

Vel heppnað kerfi?

Ég fór úr því að fá 550.000 fyrir að skrá niður svefninn minn í 350.000 fyrir að vinna 80% strangheiðarlega vinnu.

Og þegar ég var á bótum þá hafði ég tíma til að eltast við frískápa og matargjafir, tíma sem ég hef ekki núna, en í þau fáu skipti sem eg hef reynt hef ég þurft að berja frá mér þvögu af útlendingum sem sitja um frískápinn í 66°N úlpunum sínum.

Ég er ekki eina manneskjan sem lendir í þessu, að fá hærri bætur en laun og þurfa að hugsa með veskinu hvort maður hafi yfir höfuð efni á að vinna.

Sem er alveg glatað.

Niðurstaða:

a) Eitthvað má laga

b) Ísland er best

Ina Steinke

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing