Foreldrar langveiks barns hafa sent frá sér ákall til annarra foreldra um að senda ekki börn veik í leikskóla eða skóla. Færslan, sem birtist í Facebook hópunum Pabbatips og Mæðratips, hefur vakið athygli en þar sem bent er á að jafnvel væg veikindi geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir viðkvæm börn.
Vilja minna á ábyrgð foreldra
Móðirin, María Mist, segir mikilvægt að foreldrar geri sér grein fyrir þeirri áhættu sem felst í því að senda barn veikt í skóla eða leikskóla. Hún bendir á að það sem virðist smávægilegt, eins og hálsbólga eða vægur hiti, geti orðið alvarlegt fyrir börn sem glíma við undirliggjandi heilsuvanda.
Að hennar sögn þolir sonur hennar veikindi illa og þau geti margfaldast í alvarleika hjá honum. „Öll veikindi fara margfalt verr í hann og endar hann nær alltaf á því að þurfa á stærri inngripum á spítala að halda,“ segir hún.
Ekki verið að tala um venjulegt „leikskólahor“
Hún tekur fram að hún sé ekki að vísa til hefðbundinna kvefeinkenna sem oft fylgja börnum á leikskólaaldri, heldur til þess þegar foreldrar senda börn viljandi veik, til dæmis með hálsbólgu eða hita.
Hún viðurkennir að það geti verið óþægilegt að þurfa að vera heima með barn í nokkra daga vegna veikinda, en telur það engu að síður nauðsynlegt. Markmiðið sé að vernda heilsu allra barna, sérstaklega þeirra sem eru viðkvæmust.
Hvetur til samstöðu
Í lok færslunnar biður hún foreldra um að standa saman í því að gera sitt besta til að vernda heilsu barna. Hún birti einnig mynd af syni sínum frá fyrri veikindum til að undirstrika alvarleika málsins, en bendir á að hann sé nú hraustur og glaður í leikskólanum.
Hægt er að sjá færslu Maríu hér ásamt skjáskoti hér fyrir neðan.
