Formaður Eflingar hjólar í formann VR vegna leikskólamála

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur gagnrýnt Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, harðlega í færslu á Facebook vegna afstöðu hennar til krafna leikskólastjóra í Reykjavík. Tilefnið er grein sem birtist 8. febrúar, þar sem varað er við því að keyra í gegn grundvallarbreytingar á leikskólakerfinu skömmu fyrir borgarstjórnarkosningar.

Hvað sagði formaður VR?

Í grein Höllu er því haldið fram að ákall leikskólastjóra um aðgerðir sé réttmætt, þar sem álag í leikskólum hafi aukist verulega eftir styttingu vinnuvikunnar og starfsfólk flytjist í önnur sveitarfélög. Hins vegar er varað við svonefndri Reykjavíkurleið, sem að mati höfundar felur í sér að foreldrar séu þvingaðir til að stytta vistunartíma barna með tekjutengingum og hærri gjöldum.

Auglýsing

Í greininni eru færð dæmi frá öðrum sveitarfélögum þar sem sambærilegar breytingar hafi aukið fjárhagslegt og andlegt álag á foreldra, einkum mæður, og haft neikvæð áhrif á jafnrétti og atvinnuþátttöku. Þá er því haldið fram að hækkanir leikskólagjalda og breytingar á þjónustu brjóti í bága við kjarasamninga frá 2024 og skuldbindingar sveitarfélaga gagnvart barnafjölskyldum.

Formaður VR telur að krafa leikskólastjóra um að borgin keyri í gegn slíkar breytingar rétt fyrir kosningar sé ólýðræðisleg, þar sem enginn stjórnmálaflokkur hafi boðað þær í kosningum. Um leið lýsir hún stuðningi við kröfu þeirra um úrbætur, svo framarlega sem þær færi ekki álagið af kerfinu yfir á foreldra.

Segir lýðræði rangt skilgreint

Sólveig Anna hafnar þessari nálgun og segir ofstæki felast í því að kalla kröfur leikskólastjóra ólýðræðislegar vegna tímasetningar. Að hennar mati er lýðræði ekki að hundsa raddir starfsfólks og stjórnenda leikskóla, sem hún bendir á að séu nær eingöngu konur.

Hún segir skilning formanns VR á lýðræði ganga út á að hún ein ráði því hvað teljist réttmæt krafa og hvenær megi hlusta, og að það sé „púslið sem vanti“ hjá þeim sem gagnrýna ákall leikskólastjóra.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing