Það geisar faraldur kynbundins ofbeldis meðal félagsmanna í Kennarasambandinu segir Magnús Þór Jónsson formaður og Samfylkingarmaður. Af orðum hans má ráða að karlkennarar séu til mikilla vandræða þegar kemur að kynbundnu ofbeldi innan skólanna.
Þeir sem hafa komið að þessum málum hafa bent á að karlmenn séu sýnu verri en konur þegar talað er um kynbundið ofbeldi. Því beinast spjótin að karlkennurum.
Samflokksmaður Magnúsar Þórs bað um umsögn KÍ og í henni kemur fram að það geysi faraldur af kynbundnu innan skólakerfisins;
Er það í leikskólum landsins? Það má spyrja hvort þeir fáu karlmenn sem vinni í leikskóla séu svona óforskammaðir.
Er það í grunnskólum landsins? Þar starfa fleiri karlar en í leikskólanum, svo kannski er vandinn þar. Eru karlkennarar bölvaðir dónar. Kannski líka karlstjórnendur, eða? Það eru margir karlmenn deildar- og skólastjórar.
Eða eru það framhaldsskólakennarar? Í framhaldsskólum landsins starfa fleiri karlmenn í kennslustörfum en í leik- og grunnskólanum. Gæti vandið verið að karlkynskennarar í framhaldsskólanum geti ekki setið á sér þegar kvenkennarar eru annars vegar.
Eða á formaðurinn við að karlmennirnir leiti á kvenkyns nemendur, á hann við það þegar hann segist verða áþreifanlega var við kynbundið ofbeldi meðal félagsmanna?
Á hann við karlkyns nemendur?
Ætli Magnús Þór Samfylkingarmaður eigi við að strákar séu svona slæmir innan skólanna að þeir láti kvenkyns nemendur ekki í friði. Alþekkt eru orð skólameistara að nauðgunarmenning ríkti meðal drengja, þegar drengur var ranglega sakaður um nauðgun, menn létu þung orð falla í því upphlaupi. Á formaður KÍ við það? Að strákar séu til vandræða og kennarar þurfi að hafa afskipti af kynbundnu ofbeldi þeirra?
Hvað með að Samfylkingarmaðurinn Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, leggi fram tölur í þessu samhengi, um kennarastéttina og nemendur því enginn veit um hvorn hópinn hann talar. Allt í þokuskýi, ýjað að einhverju.
Hvað segja formenn aðildarfélaganna?
Formenn félaga innan KÍ virðast ætla að sitja undir ásökunum formanns KÍ á hendur karlkennurum í þeirra félagi. Beita þeir kynbundnu ofbeldi innan skólanna? Annað er ekki hægt að lesa út úr því sem Magnús Þór lét hafa eftir sér.
Er það svo formenn, Félaga leikskólakennara, grunnskólakennara, framhaldsskólakennara, tónlistakennara og stjórnendafélaganna?
Geysar faraldur kynbundins ofbeldis af völdum karlkennara í stéttinni sem þið farið fyrir?
Það er skömm að því að formaður KÍ fari fram með þessum hætti.
Enn á ný hefur Magnús Þór Jónsson formaður KÍ og Samfylkingarmaður sett svartan blett á kennarastéttina til að styðja Samfylkinguna og hennar hugðarefni.
Helga Dögg Sverrisdóttir, grunnskólakennari.