Formaður Ungra Miðflokksmanna gerir stólpagrín að Viðreisn vegna reynslulausnar Sterkaj

Anton Sveinn McKee, formaður Ungra Miðflokksmanna, gerir stólpagrín að Viðreisn eftir að Angjelin Sterkaj, sem dæmdur var fyrir morðið á Armando Beqirai í Rauðagerði, var látinn laus úr fangelsi og sendur til Albaníu eftir að hafa afplánað um þriðjung refsingar sinnar.

Sterkaj var látinn laus á grundvelli nýrrar heimildar sem gerir kleift að veita erlendum föngum reynslulausn eftir að þriðjungur refsitímans er liðinn þegar fyrir liggur ákvörðun um brottvísun úr landi.

Auglýsing

Anton segir á X að Viðreisn eigi þakkir skildar fyrir breytinguna en sumum þykjast sjá vott af kaldhæðni í færslunni.

„Vil þakka Viðreisn fyrir að halda uppi mannúðlegum sjónarmiðum og semja lög sem hleypa morðingjum frjálsum ferða sinna eftir að hafa afplánað 1/3 dómsins. Endurkomubannið ætti að kenna þeim dýrmæta lexíu,“ skrifar Anton.

Hann bætir svo við:

„Gleymum svo ekki tveggja þrepa refsikerfinu þar sem Íslendingar sitja lengur.“

Varaði við tvískiptu refsikerfi í júní

Anton vísar einnig í færslu sem hann birti í byrjun júní þegar verið var að ræða breytingarnar. Þar gagnrýndi hann þá stefnu að stytta afplánun erlendra fanga sem vísa ætti úr landi til þess að losa pláss í fangelsum landsins.

„Samfélagið okkar er komið á slæman stað þegar dómsmálaráðherra og fangelsismálastjóri stæra sig af því að losa um pláss sem erlendir fangar fylla, svo innlendir fangar geti loksins fengið þau í staðinn,“ skrifaði Anton þá.

Hann sagði verið að setja plástra á vandamálið í stað þess að ráðast að rótum þess og taldi breytinguna stefna í tvískipt refsikerfi.

„Þú færð að dúsa inni ef þú ert Íslendingur, en ef þú ert erlendur brotamaður virðist lausnin vera frjáls för.“

Vildi frekar herða landamæraeftirlit

Anton sagði jafnframt að stjórnvöld ættu að nýta þær heimildir sem Schengen reglur veita til tímabundins innra landamæraeftirlits og benti á að nokkur Schengen ríki hefðu þegar gripið til slíkra ráðstafana vegna meðal annars skipulagðrar glæpastarfsemi og ólöglegra fólksflutninga.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing