Fórnarlamb árásarinnar á Bondi Beach sakar lögreglu um að hafa „frosið“ í 20 mínútur meðan skotárásin stóð yfir – Myndband

Einn þeirra sem lifði af hryðjuverkaárásina á Hanukkah-hátíð gyðinga á Bondi Beach í Sydney segir lögreglu hafa brugðist alvarlega þegar tveir árásarmenn skutu á mannfjölda í allt að 20 mínútur án þess að lögregla hafi gripið inn í.

Árásin átti sér stað á sunnudagskvöld og kostaði að minnsta kosti 16 manns lífið, þar á meðal 10 ára barn.

„Þeir skutu, skiptu um magasín og skutu aftur“

Auglýsing

Shmulik Scuri, sem var viðstaddur ásamt fjölskyldu sinni, segir árásarmennina hafa skotið ítrekað af göngubrú yfir mannfjöldann án þess að verða stöðvaðir.

„Í 20 mínútur. Þeir skutu, hlóðu aftur og aftur og héldu svo áfram að skjóta. Og enginn stöðvaði þá,“ sagði Scuri í samtali við fjölmiðla.

Hann segir að fjórir lögreglumenn hafi verið á staðnum allan tímann án þess að skjóta til baka eða reyna að stöðva árásina á nokkurn hátt.

„Það voru fjórir lögreglumenn þarna. Enginn skaut til baka. Ekkert. Eins og þeir hafi frosið. Ég skil þetta ekki.“

Aðspurður um hverjir hefðu verið skotmark árásarmannanna svaraði Scuri skýrt:

„Allir. Gyðingar. Karlar, gamalt fólk, börn. Það skipti engu máli.“

Ljósmynd af lögregluþjóni fela sig bakvið bíl

 

Myndband frá vettvangi vekur reiði

Í lokin er vert að geta myndbands sem birt hefur verið á samfélagsmiðlinum.

Þar má sjá kvenkyns lögreglumann halda sér fast í lögreglubíl og virðast neita að fara í átt að skotárásinni, á meðan karlkyns samstarfsmaður hennar reynir að sannfæra hana um að bregðast við.

Í lýsingu myndbandsins er lögreglan gagnrýnd harðlega og fullyrt að yfirvöld hafi brugðist algjörlega og beri ábyrgð á alvarlegum mistökum í viðbrögðum við árásinni.

Myndbandið hefur vakið mikla reiði og gagnrýni um þjálfun og viðbrögð lögreglu þar í landi.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing