Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, heimsótti fangelsið Litla-Hraun um helgina þar sem hún tók þátt í óhefðbundinni samveru með föngum, sjálfboðaliðum, starfsfólki fangelsisins og heimamönnum. Þar var meðal annars stunduð öndun, hugleiðsla og yoga undir stjórn kennara úr Bataakademíunni.
Tolli Morthens, forsvarsmaður Bataakademíunnar, lýsir heimsókninni sem einstakri og mögnuðum augnabliki. Í færslu á samfélagsmiðlum segir hann að forsetinn hafi tekið þátt í athöfninni með fullri einlægni og nærveru.
„Þetta er trúlega einstakt í heiminum að forseti stígi inn á þennan hátt með kærleik og virðingu að leiðarljósi og eigi um leið stóran þátt í að töfra fram andrúmsloft friðar og sáttar,“ skrifar Tolli. Hann lýsir því að stór hópur fólks – þar á meðal fangelsismálastjóri og yfirmenn Litla-Hrauns – hafi legið saman á yoga-dýnum í rökkri og andað í takt í svokallaðri yoga nidra æfingu.
Stærsta gjöfin „orkan sem við sköpuðum saman“
Halla Tómasdóttir greindi sjálf frá heimsókninni í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún lýsir deginum sem mögnuðum og áhrifaríkum.
„Við ræddum málin í einlægni og kærleika, tókum yoga æfingar, önduðum í takt og náðum djúpri slökun saman,“ skrifar forsetinn. Hún segir jafnframt að henni hafi verið afhent einstaklega falleg og kærleiksrík gjöf, en að stærsta gjöfin hafi þó verið „orkan sem við sköpuðum saman“.
Forseti Íslands þakkaði sérstaklega Tolli Morthens og Þránni Farestveit forstöðumanni Verndar, sem einnig hefur komið að starfi Bataakademíunnar, auk annarra þátttakenda, sem hún kallar „riddara kærleikans“.
Heimsóknin vekur athygli fyrir þá nálgun sem þar var viðhöfð – þar sem áhersla var lögð á mannlega nærveru, sátt og innri vinnu innan veggja eins stærsta fangelsis landsins. Slík þátttaka þjóðhöfðingja í endurhæfingar- og friðarskapandi starfi telst fátíð, bæði hér á landi og erlendis.