Forstjóri OpenAI segist ekki geta hugsað sér að ala upp nýfætt barn án ChatGPT

Sam Altman, forstjóri OpenAI, hefur vakið mikla athygli eftir að hafa lýst því yfir að hann hafi að miklu leyti treyst á ChatGPT þegar hann var að fóta sig í foreldrahlutverkinu.

Hann og eiginmaður hans, Oliver Mulherin, eignuðust son í febrúar.

Leitaði í sífellu ráða hjá gervigreindinni

Auglýsing

Í viðtali í The Tonight Show hjá Jimmy Fallon sagði Altman að hann hefði oft þurft að sækja sér hughreystingu í ChatGPT vegna hversdagslegra hluta.

„Ég get einfaldlega ekki ímyndað mér að hafa þurft að læra að ala upp nýbura án ChatGPT,” sagði hann en viðurkenndi jafnframt að kynslóðir foreldra hefðu gert það áður án nokkurs vanda.

Hann lýsti meðal annars aðstæðum á veislu þar sem annar foreldri sagði sex mánaða gamalt barn sitt þegar farið að skríða.

Altman varð skelfingu lostinn, hljóp á salernið og spurði ChatGPT í örvæntingu hvort sonur hans væri á eftir í þroska.

„Ég spurði: Þarf ég að fara með barnið til læknis á morgun?“ sagði hann.

ChatGPT svaraði honum að allt væri eðlilegt og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur.

Altman sagði að svarið virtist sem sérsniðið að honum:

„ChatGPT þekkir þig, og það minnti mig á að ég væri alltaf í kringum afreksfólk og ætti ekki að varpa þeim væntingum á barnið mitt.“

Hörð gagnrýni á netinu

Ummæli Altman vöktu að sjálfsögðu leiftursnögg viðbrögð á samfélagsmiðlum og margir gerðu lítið úr því að forstjóri OpenAI þyrfti gervigreind til að átta sig á barnauppeldi.

„Hann þarf ChatGPT til að gera það sem menn hafa gert frá örófi alda,“ skrifaði einn.

Annar benti á að milljarðar barna hafi fæðst fyrir tíma gervigreindar.

Þriðji sagði að Altman væri „í raun að segja að hann sé heimskur“ og bætti við að fólk sem treysti á ChatGPT til barnauppeldis ætti að endurskoða hvort foreldrahlutverkið hentaði þeim.

Segir foreldrahlutverkið hafa breytt sýn sinni á gervigreind

Altman hefur áður rætt hvernig það að verða faðir hafi haft áhrif á hugmyndir hans um framtíð gervigreindar.

Í hlaðvarpsþættinum Re:Thinking hjá Adam Grant sagði hann að barn hans myndi vaxa úr grasi í heimi þar sem gervigreind væri allsráðandi.

„Barnið mitt mun aldrei alast upp við það að vera gáfaðra en gervigreind,“ sagði hann. „Börn framtíðarinnar munu aðeins þekkja heim þar sem gervigreind er til staðar.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing