Joey Barton, fyrrum leikmaður í ensku úrvalsdeildinni, hefur hlotið skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir „grófar og móðgandi“ færslur á samfélagsmiðlum sem beindust að sjónvarpsmanninum Jeremy Vine og knattspyrnusérfræðingunum Lucy Ward og Eni Aluko.
Dómurinn var kveðinn upp í Liverpool Crown Court í dag.
Sex mánaða dómur, skilorð í 18 mánuði
Barton, sem er 43 ára og átti skrautlegan feril í ensku úrvalsdeildinni, var í síðasta mánuði dæmdur sekur í sex ákæruliðum fyrir rafræn samskipti sem voru „gróflega móðgandi“ með það að markmiði að valda vanlíðan eða kvíða.
Hann var sýknaður af sex öðrum ákærum.
Hann hlaut allt að sex mánaða fangelsi fyrir hvern ákærulið, sem allir verða afplánaðir samhliða og skilorðsbundnir í 18 mánuði.
Þetta þýðir að Barton þarf ekki að fara í fangelsi nema hann brjóti skilorð sitt á tímabilinu.
Auk þess var honum gert að sinna 200 klukkustundum af ólaunaðri samfélagsþjónustu og greiða rúmlega 20 þúsund pund í kostnað.
Þá var einnig sett á hann nálgunarbann gagnvart þeim sem ummælin beindust að.
Líkti konunum við raðmorðinga og kallaði Vine „bike nonce“
Í færslum sem sendar voru á X frá janúar til mars 2024 líkti Barton Lucy Ward og Eni Aluko við raðmorðingjana Fred og Rose West.
Einnig kallaði hann Jeremy Vine „bike nonce“, sem er slangur yfir barnaníðinga, en þetta var meðal þess sem saksóknari taldi hafa „farið langt yfir mörk tjáningarfrelsis“.
Saksóknarar sögðu Barton hafa vísvitandi reynt að gera lítið úr og niðurlægja þau sem ummælin beindust að með stöðugum árásum.
Þess má geta að hinn ágæti lýsandi Gummi Ben hefur ekki mikið álit á Barton eins og frægt er orðið.