Mikil óánægja hefur brotist út innan breskra stjórnmála eftir að nýjar leiðbeiningar frá Sentencing Council, sem setja viðmið sem dómstólar þurfa að fara eftir, tóku gildi en í þeim segir að sérstakar úttektir um refsingar þurfi að gera fyrir einstaklinga sem tilheyra minnihlutahópum og konur.
Forsætisráðherrann Keir Starmer og dómsmálaráðherrann Shabana Mahmood hafa lýst yfir miklum vonbrigðum vegna breytinganna, sem munu taka gildi á þriðjudag en Nútíminn sagði frá þessari ákvörðun í frétt fyrir stuttu.
Segjast vilja stöðva viðmiðin en hafa ekkert gert
Forsætisráðherrann sagði að „allar leiðir væru opnar“ í að snúa þessum viðmiðum við og að mismunun gagnvart hvítum karlmönnum væri „óásættanleg“.
Samkvæmt nýju leiðbeiningunum munu dómarar framvegis gera sérstakar refsiúttektir ef sakborningur er undir 25 ára aldri, kona, ófrísk, eða tilheyrir kynþátta-, trúar- eða menningarlegum minnihlutahópi.
Slíkar úttektir hafa venjulega í för með sér mildun dóms yfir viðkomandi, stundum verulega.
GB News segir að hvíti karlmenn muni líklega fá harðari dóma en aðrir hópar, þar sem þeir njóti ekki sömu úttekta og aðrir hópar en orðalagið gefur til kynna að allir nema hvítir karlmenn skuli fá þessar úttektir.
„Mismunun óásættanleg“
Hann spurði tvisvar hvort ríkisstjórnin hygðist einfaldlega leggja niður Sentencing Council, en forsætisráðherrann svaraði aðeins að allar leiðir væru í skoðun.
Dómsmálaráðherrann Mahmood sagði í yfirlýsingu: „Leiðbeiningarnar fela í sér skýra mismunun þar sem niðurstöður geta ráðist af kynþætti, trú eða menningu. Það er algjörlega óásættanlegt.“
Stjórnvöld virðast nú í kapphlaupi við tímann og þó svo að stjórnin segist hafa beitt ráðið þrýstingi til að breyta viðmiðum sínum fyrir dómstóla hefur það engan árangur borið en samkvæmt lögum hefur stjórn landsins ekki heimild til að gríða fram fyrir hendurnar á ráðinu.
Hyggist ríkisstjórn Starmer setja lög á þessi viðmið mun það líklega taka marga mánuði og næstum ómögulegt að slíkt geti gengið í gegn fyrir þriðjudag.
Á meðan ríkir óvissa um meðferð mála í dómskerfinu fyrir hvíta karlmenn sem geta frá og með morgundeginum átt von á mun þyngri refsingum en aðrir hópar samfélagsins.
Total Globalist Tranny ALERT!
The British Sentencing Council has decided that starting Tuesday, white men will be sentenced to longer prison sentences than women and ethnic minorities
Soros DAs across the U.S. already enforce this anti white rule to the point of not… pic.twitter.com/jRFFfGeF3x
— Alex Jones (@RealAlexJones) March 30, 2025