Frakklandsforseti í mál við vinsælan þáttastjórnanda sem segir forsetafrúna vera transkonu

Frakklandsforseti Emmanuel Macron og eiginkona hans, Brigitte Macron, hafa höfðað mál gegn bandaríska áhrifavaldinum Candace Owens vegna fullyrðinga þess efnis að Brigitte sé karlmaður.

Í stefnunni er Owens sökuð um að hafa rekið „áralanga, skipulagða og ærumeiðandi herferð“ gegn Macron-hjónunum.

Auglýsing

Þar kemur fram að í mars síðastliðnum hafi Owens birt myndband á YouTube með titlinum „Is France’s First Lady a Man?“, sem hún kallaði „mesta pólitíska hneyksli sögunnar“.

Owens hefur síðan birt fjölda annarra mynda og myndbanda, þar á meðal seríu sem ber titilinn Becoming Brigitte, og hefur einnig selt varning sem styður við samsæriskenninguna.

Stefnan sögð byggja á röngum og skaðlegum ásökunum

Samkvæmt yfirlýsingu frá lögmanni hjónanna felur stefnan í sér ásakanir um ærumeiðandi rangfærslur sem hafi valdið verulegu fjárhagslegu tjóni og skert framtíðarmöguleika þeirra á sviði atvinnulífs og opinberrar þátttöku.

Þau krefjast miskabóta og segjast hafa orðið fyrir „miklum skaða á orðspori og einkalífi“.

Í yfirlýsingunni segir enn fremur að Owens hafi fengið afhent „óyggjandi gögn“ sem sýna fram á að Brigitte hafi fæðst sem kona að nafni Brigitte Trogneux og sé ekki blóðskyld eiginmanni sínum.

Einnig sé algerlega rangt að þau séu undir stjórn leynilegs CIA tengds verkefnis, eins og Owens hefur gefið í skyn.

Owens svarar með gríni

Owens birti mynd á Instagram af Macron-hjónunum með textanum: „Ég ætla að fjarlægja þessa hárkollu í dag. Fylgist með.“

Forsetiembætti Frakklands, Élysée-höllin, neitar að tjá sig um málið og segir það vera „einkamál“.

Áður höfðað mál í Frakklandi

Brigitte Macron hefur áður höfðað mál gegn tveimur frönskum konum fyrir að breiða út sömu ásakanir árið 2022.

Þær voru sakfelldar í héraðsdómi, en unnu áfrýjun og málið mun nú verða tekið fyrir í æðra dómstigi.

Emmanuel Macron hefur áður tjáð sig opinberlega um þessa samsæriskenningu og sagði á viðburði í París í mars 2024 að „verstu hliðar forsetaembættisins væru falskar upplýsingar og tilbúnar sögur sem fólk byrjar að trúa og raski síðan jafnvel einkalífi fólks.“

Málið er nú í upphafi málsmeðferðar í Bandaríkjunum og óljóst hve lengi það mun dragast.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing