Ný könnun CNN, framkvæmd af SSRS, sýnir að fylgi Demókrataflokksins í Bandaríkjunum er nú lægra en nokkru sinni áður en einungis 29% landsmanna hafa jákvætt álit á flokknum.
Þetta er lægsta hlutfall sem mælst hefur í könnunum allt frá árinu 1992 og táknar um 20 prósenta lækkun frá janúar 2021, þegar Donald Trump lauk fyrsta kjörtímabili sínu og Joe Biden tók við.
Fylgishrunið má að hluta rekja til vaxandi óánægju meðal eigin stuðningsmanna en aðeins 63% Demókrata og þeirra eigin stuðningsmanna þeirra lýsa nú jákvæðu viðhorfi til flokksins, samanborið við 81% í upphafi forsetatíðar Joe Biden.
Jafnt frjálslyndir sem hófsamir sýna nú 18 prósenta lægri fjölda þeirra sem eru ánægðir með flokkinn en voru árið 2021.
Finnst flokkurinn á leið í ranga átt
52% stuðningsmanna Demókrata segja að leiðtogar flokksins séu að fara með flokkinn í ranga átt, sem er algjör viðsnúningur frá því fyrir átta árum, þegar skoðanir voru almennt jákvæðar.
Á meðan halda Repúblikanar sínu fylgi, en 36% landsmanna hafa jákvæða skoðun á flokknum og 79% Repúblikana-sinna styðja sinn flokk.
Þeir sem segjast óháðir hafa litla trú á báðum flokkum: aðeins 19% hafa jákvæða skoðun á Demókrötum og 20% á Repúblikunam.
Leiðtogalausir
Í könnuninni var einnig spurt hver sé leiðtogi Demókrata sem best endurspegli kjarnagildi flokksins.
Enginn náði yfir 10% stuðningi.
Alexandria Ocasio-Cortez fékk 10%, Kamala Harris 9%, Bernie Sanders 8% og Hakeem Jeffries 6%. Yfir 30% nefndu engan og einn svaraði einfaldlega: „Enginn. Það er vandamálið.“
Könnunin sýnir einnig að meirihluti svarenda lítur á stefnu beggja flokka sem of öfgakennda.
Þrátt fyrir háværa gagnrýni virðist enginn Demókrati skara fram úr sem sameiningartákn flokksins í augum stuðningsmanna.