Fyrrum hæstaréttardómari gagnrýnir forsjárhyggju stjórnvalda

Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, gagnrýnir harðlega forsendur stjórnmálaumræðu og ríkisafskipta í færslu sem hann birti á Facebook í gær.

Þar fjallar hann um nýjustu launatilfærslur stjórnvalda, sem hann segir endurspegla „úthlutunarsinna“ sem flytji fé milli hópa á kostnað skattgreiðenda.

Segir grunnforsendur umræðunnar rangar

Auglýsing

Jón Steinar telur að umræðan um réttlæti í opinberum tilfærslum byggi á röngum hugmyndum um hlutverk ríkisins.

Hann bendir á að auknar álögur, til dæmis á bifreiðaeigendur, séu notaðar til að fjármagna úthlutanir sem óhjákvæmilega leiði til átaka.

„Sumir telja sig hlunnfarna. Þeir hefðu átt að fá stærri skerf,“ skrifar Jón og bætir við að þessi deila hafi verið fyrirsjáanleg.

Hins vegar sé lítið rætt um hugmyndafræðina sem liggi að baki.

„Menn sjá ekki skóginn fyrir trjánum,“ segir hann og sakar stjórnmálaflokka almennt um að festast í forsjárhyggju.

Einstaklingurinn sé grunneining samfélagsins

Í færslunni ræðir Jón Steinar að samkvæmt hans skilningi verði samfélag til vegna einstaklinganna en ekki öfugt.

Ríkinu beri því ekki að taka ákvarðanir um líf fólks eða aflétta ábyrgð einstaklings á eigin ákvörðunum.

„Hlutverk þess getur aldrei orðið að taka ákvarðanir um sérstök málefni hans,“ skrifar hann.

Þess í stað eigi ríkið að vernda réttindi einstaklinga gegn ásókn annarra.

Telur stjórnmálamenn kaupa atkvæði með loforðum

Fyrrverandi dómarinn segir stjórnmálamenn daglega reyna að þynna út frelsisviðhorf samfélagsins með aðgerðum sínum, en kjósendur séu gjarnan til í að selja atkvæði sín fyrir skammtímabætur.

„Pyngja dagsins er þyngri hjá þeim flestum en fylgispekt við hugsjónir frelsis og ábyrgðar,“ skrifar hann.

Úrræði vegna skuldavanda heimila dæmi um ranga áherslu

Jón Steinar gagnrýnir einnig núverandi aðgerðir stjórnvalda vegna skuldavanda heimila, sem hann segir til marks um stjórnvaldastefnu sem hefur sótt í sig veðrið áratugum saman.

Aðgerðirnar séu dæmi um að reynt sé að leysa samfélagsvanda með opinberri forsjá og því að „forða mönnum frá að bera ábyrgð á sjálfum sér.“

Telur engan stjórnmálaflokk bjóða upp á valkost

Að lokum segir hann að enginn stjórnmálaflokkur bjóði upp á raunverulegan kost sem byggist á frelsi og ábyrgð einstaklinga.

„Allir stjórnmálaflokkar taka þátt í þessari forsjárhyggju,“ skrifar hann.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing