Fyrrum kærasta Andrew Tate segir hann hafa beitt sig ofbeldi

Brianna Stern, fyrrverandi kærasta Andrew Tate, hefur nýlega stigið fram með alvarlegar ásakanir um ofbeldi í sambandi þeirra. Í mars 2025 lagði hún inn kæru á Andrew, í Los Angeles, þar sem hún sakar hann um kynferðislegt ofbeldi og líkamsárás.

Brianna lýsir 10 mánaða sambandi þeirra sem stormasömu sambandi þar sem Andrew var mjög ástúðlegur og örlátur en fór síðan að beita líkamlegur og andlegu ofbeldi. Hún segir frá atviki á Beverly Hills hótelinu þar sem Andrew á að hafa tekið hana hálstaki og hótað að drepa hana. Hún fékk heilahristing eftir eitt af atvikunum.

Auglýsing

Í viðtali við NBC News lýsti Brianna hversu hrædd hún var við Andrew: „Ég var dauðhrædd. Svo hrædd að ég óttaðist að ég myndi deyja.“ Eftir að hún steig fram hefur hún fengið hótanir á netinu og segist ennþá vera hrædd við Andrew.

Lögfræðingur Andrew, Joseph McBride, hefur hafnað ásökununum og sagt að Brianna vilji bara fá peninga út úr Andrew. Þetta mál bætist við önnur lagaleg vandamál Andrews, en hann hefur verið kærður fyrir mansal í Rúmeníu og að stofna glæpasamtök.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing