Fyrsta fatlaða, svarta trans fyrirsætan sem einnig er með alvarlega heilalömun slær í gegn – kennir „hvítleika“ um erfiðleika sína

Fyrirsætan Aaron Rose Philip vakti gríðarlega athygli á rauða dregilinum á Met Gala 2026.  Philip varð þarna fyrsta svarta trans fyrirsætan með alvarlega heilalömun sem sækir þennan „virtasta“ viðburð tískuheimsins.

Philip komst nýlega á samning hjá hinni virtu umboðsskrifstofu Elite, sem er ein sú stærsta í tískuheiminum.

Auglýsing

Viðburðurinn, sem er þekktur fyrir að vera mikið sjónarspil, fékk óvænta viðbót í ár þegar Philip kom fram á rauða dreglinum.

Byrjaði snemma í tískuheiminum

Philip, sem er einnig þekkt sem Aariana Rose Philip, hefur verið áberandi í tískuheiminum frá unga aldri. Philip vakti fyrst athygli árið 2019 á tískusýningu hjá Willie Norris Workshop og birtist sama ár á forsíðu Paper Magazine.

Frá þeim tíma hefur Philip unnið með þekktum tískuhúsum og komið fram á tískupöllum, meðal annars fyrir Moschino og Collina Strada og komið fram í bresku útgáfu Vogue.

Auk fyrirsætustarfsins hefur Philip gefið út tónlist.

Sakar „hvítleika“ um skort á fjölbreytni

Philip hefur einnig vakið athygli fyrir ummæli sín um stöðu minnihlutahópa í tískuheiminum. Philip hefur gagnrýnt það sem hún kallar „hvítleika“ (whiteness) í greininni og segir það vera eina af lykilástæðunum fyrir hversu fáar fyrirsætur sem eru trans, svartar og fatlaðar fá tækifæri á tískupöllum.

„Fólk eins og ég fékk ekki að mæta á svona viðburði

Í viðtali lýsti Philip því hversu mikla merkingu það hafði að vera hluti af viðburðinum.

„Í langan tíma var fatlað fólk einfaldlega ekki til staðar. Hugmyndin um að vera á svona viðburði var nánast óhugsandi,“ sagði Philip og sagðist upplifa bæði þakklæti og heiður fyrir að fá að taka þátt.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing