Fyrsta MMA kvöld Íslandssögunnar fer fram í kvöld

Bjarki Þór Pálsson, fyrrum atvinnumaður í MMA og eigandi Reykjavík MMA, stendur fyrir fyrstu eiginlegu MMA hátíð Íslands þegar Glacier Fight Night verður haldið 15. nóvember næstkomandi í Andrews Theater á Ásbrú í Reykjanesbæ.

MMA stendur fyrir Mixed Martial Arts eða blandaðar bardagalistir.

Auglýsing

Þar með verður í fyrsta sinn keppt löglega í MMA á íslenskri grund.

Stórt skref fyrir íslenskt MMA

Bjarki hefur unnið að verkefninu lengi og staðfestir í viðtali við MMA-Fréttir að öll nauðsynleg leyfi séu komin í hús.

Reykjanesbær, sýslumaður, lögregla og brunaeftirlit hafa öll samþykkt viðburðinn.

Hátíðin fer fram í Andrews Theater sem tekur um 450 manns í sæti auk VIP borða.

Miðasala fer fram á Tix.is, en en hægt verður að sjá viðburðinn í beinni útsendingu í Sjónvarpi Símans.

„Við þurfum að fá að berjast hér heima“

Mikið hefur verið rætt um stöðu MMA á Íslandi, en reglur og leyfi fyrir slíkum viðburði eru nú skýr.

Bjarki segir í samtali við MMA Fréttir að íslenskir keppendur þurfi ekki lengur að ferðast út fyrir hverja einustu viðureign.

„Þegar Caged Steel datt niður í september þá fór ég að hugsa að þetta gengi ekki lengur. Við verðum að fá að berjast og þetta er að ganga alltof hægt að vera með fimm eða sex bardaga og þurfa að ferðast til Englands í hvert skipti,” segir hann.

Erlendir dómarar og skandinavískar reglur

Til að tryggja ítrustu fagmennsku munu dómari og stigaverðir koma frá Bretlandi.

Þeir eru vanir alþjóðlegum mótum og eiga að tryggja að allt fari fram samkvæmt evrópskum viðmiðum.

Keppt verður eftir skandinavískum áhugamannareglum IMMAF.

Það þýðir meðal annars að olnbogar og hné í höfuð eru ekki leyfð, og keppendur munu nota legghlífar eins og tíðkast á Evrópumótum IMMAF.

Fyrsti bardagi hefst klukkan 19:00 og eins og áður sagði verður viðburðurinn í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing