Fyrstu flóbylgjur skella á Rússlandi, Japan og Bandaríkjunum eftir risaskjálftann sem mældist 8,8 – Sá stærsti síðan 2011

Gríðarlegur jarðskjálfti upp á 8,8 að stærð, sá öflugasti í heiminum frá árinu 2011, reið yfir undan strönd Kamtsjatkaskaga í austurhluta Rússlands í nótt.

Í kjölfarið hafa flóðbylgjur skollið á norðausturströnd Japans, og einnig á Hawaii og Alaska.

Auglýsing

Viðvaranir hafa verið gefnar út víða um Kyrrahafið.

Japan: Viðvörun, rýming og ótti við endurtekningu 2011

Japanska veðurstofan segir að flóðbylgja upp á 1,3 metra hafi mælst við Kuji-höfn í Iwate-fylki.

Stærri bylgjur eru í vændum og hafa milljónir verið beðnar um að yfirgefa heimili sín.

Rýming fór meðal annars fram í Fukushima kjarnorkuverinu þar sem starfsfólk yfirgaf svæðið og losun meðhöndlaðs geislavirkts úrgangs var stöðvuð.

Rússland: Mikil skjálftavirkni og neyðarástand

Upptök skjálftans voru um 125 km frá borginni Petropavlovsk-Kamchatsky og á aðeins 19 km dýpi.

Flóðbylgjur upp á 3 til 4 metra hafa mælst víða við Kamtsjatkaog skemmdir hafa orðið á byggingum, þar á meðal leikskóla og flugstöð.

Tilkynnt hefur verið um slys á fólki en ekkert um mannfall enn sem komið er.

Íbúar í Severo-Kurilsk voru fluttir á brott og neyðarástand hefur verið lýst yfir.

Bandaríkin: Flóðbylgja skellur á Hawaii og Alaska

Í Hawaii mældust bylgjur yfir 1,5 metrar á ströndum Maui og Oahu.

Neyðarskýli hafa verið opnuð og vegir eru í lamasessi vegna flóttans frá strandarhéruðum.

Samgöngur til og frá Kahului flugvelli hafa verið stöðvaðar.

Neyðarviðvaranir eru einnig í gildi við strendur Kaliforníu, Oregon og Washington og fjöldi ríkja með viðvörun um óvenjulega sjávarstrauma.

Önnur lönd: Áhrif víðar um Kyrrahafið

Nýja-Sjáland hefur varað við öflugum straumum og skyndilegum sjávarhækkunum og ráðlagt fólki að halda sig frá strandlengjunni.

Indónesía hefur gefið út að flóðbylgjur um 0,5 metra gætu náð til hluta af Papúa og Maluku eyjum.

Ástralska flóðbylgjuviðvörunarmiðstöðin hefur hins vegar lýst því yfir að engin hætta stafi af skjálftanum þar.

Viðvaranir áfram í gildi

Japanska veðurstofan varar við að hættan geti staðið yfir í allt að sólarhring.

Bandaríska flóðbylgjuviðvarunarkerfið segir að bylgjur gætu náð landi í Oregon og Kaliforníu um kvöldið að staðartíma.

Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, hefur hvatt þjóð sína til að „halda ró sinni og vera viðbúin“.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing