Margir telja sig vita hvað þarf til að lifa af í villtri náttúru eftir að hafa séð kvikmyndir um hvernig skal bera sig að eða heyrt um ákveðnar aðferðir.
Vandamálið er að sumar af þessum aðferðum sem búið er að sýna okkur eru hættulegar rangfærslur.
Þær geta ekki bara gert ástandið verra, heldur beinlínis komið þér í gröfina.
Áttu að kveikja eld í helli, er hægt að drekka vatn úr kaktus, þarf að sjóða allt drykkjarvatn, drekka áfengi í kulda, hljómar þetta kunnuglega?
Í þessu myndbandi frá Debunked eru vinsælustu mýturnar teknar fyrir og við getum séð hvað er satt og hvað ekki og síðast en ekki síst, hvað við eigum að gera í staðinn.
Heldurðu að þú gætir bjargað þér úti í óbyggðunum, og ertu sömu skoðunar eftir að hafa horft á myndbandið?