Erla Gerður Sveinsdóttir, sérfræðilæknir í offitumeðferð, mætti í viðtal í Kastljósinu á RÚV 29.janúar þar sem hún ræddi notkun svokallaðra þyngdarstjórnunarlyfja.
Gagnrýni vegna viðtalsins spratt upp á samfélagsmiðlinum X þar sem Sveinn Arnarsson bendir á að RÚV hefði átt að upplýsa áhorfendur um að Erla Gerður hafi á undanförnum árum þegið verulegar greiðslur frá lyfjafyrirtækinu Novo Nordisk, sem framleiðir lyf á borð við Ozempic og Wegovy, en hún var fengin í þáttinn sem sérfræðingur til að ræða einmitt þessi lyf.
Í færslunni er bent á að eðlilegt og heiðarlegt hefði verið að taka þessi tengsl fram í upphafi viðtalsins, svo áhorfendur gætu sjálfir metið umfjöllunina í ljósi þess.
Þessi sérfræðilæknir var í Kastljósi í kvöld að ræða um þyngdarstjórnunarlyf.
Gott og blessað, en mer finnst eðlilegt að hún láti vita í upphafi viðtalsins, svo allir viti, að hún fékk tæpar 5.000.000 kr.- frá NovoNordisk 2022-2024.Það er heiðarlegra. pic.twitter.com/5QKJSL37It
— Sveinn Arnarsson (@SveinnArnarsson) January 29, 2026
Greiðslur upp á tæpar fimm milljónir króna
Samkvæmt gögnum Frumtok.is, samtaka frumlyfjaframleiðenda á Íslandi, hefur Erla Gerður Sveinsdóttir fengið eftirfarandi greiðslur frá Novo Nordisk:
Árið 2022 námu greiðslurnar alls 1.776.409 krónum.
Árið 2023 námu greiðslurnar 1.659.960 krónum.
Árið 2024 námu greiðslurnar 1.347.551 krónum.
Samtals nema greiðslurnar því 4.783.920 krónum á þessum þremur árum, eða tæpum fimm milljónum króna.
Greiðslurnar eru samkvæmt gögnunum sundurliðaðar sem þóknanir fyrir fræðslu, ferðakostnað og gistingu vegna fræðsluerinda, skráningargjöld á ráðstefnur og önnur tengd útgjöld.
Sagðist engan hag hafa af ávísunum
Í eldri frétt hefur Erla Gerður reyndar sjálf haldið því fram að hún hafi engan hag af því að ávísa þessum lyfjum. Í viðtali við Vísi í janúar 2024 sagði hún að hún fengi greitt frá Sjúkratryggingum Íslands líkt og aðrir sérfræðilæknar og að greiðslur hennar væru óháðar því hvaða meðferð hún ráðleggur sjúklingum.
Hún sagði jafnframt að greiðslur frá Novo Nordisk tengdust fræðslu til heilbrigðisstarfsfólks og fyrir að sækja ráðstefnur, en ekki ávísunum á lyf. Að hennar sögn hafi lyfjafyrirtækið enga aðkomu að innihaldi fræðslunnar.
Nútíminn hefur sent Ríkisútvarpinu fyrirspurn vegna málsins og verður svarið birt þegar og ef það berst.