Gagnrýnir aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar um jafnrétti – Segir kynjafræði snúast um að brjóta niður karla

Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins gerði grein fyrir atkvæði sínu gegn nokkrum liðum í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar um jafnrétti kynjanna í ræðu á Alþingi fyrr í dag.

Í ræðu sinni sagði Snorri að aðgerðirnar snérust að hans mati ekki eingöngu um jafnrétti heldur um hugmyndafræðilega nálgun sem hann væri ósammála. Hann sagði meðal annars að verið væri að reyna að móta fólk eftir ákveðnu viðmiði.

Auglýsing

„Að mörgu leyti snýst þetta um að steypa öllum í sama mót, meðal annars brjóta niður karlana, eins og hefur nú tekist á ýmsum sviðum,“ sagði Snorri.

Gagnrýnir forgangsröðun í framhaldsskólum

Snorri vék einnig að stöðu kynjafræði í framhaldsskólum og sagði forgangsröðun þar vera öfugsnúna. Hann benti á að sums staðar væri skylt að taka kynjafræði til að ljúka námi, á meðan nemendur gætu komist hjá því að taka jafnvel einn áfanga í Íslandssögu.

Að hans mati vekur það spurningar um hvert raunverulegt hlutverk kynjafræðinnar sé orðið. Hann sagði að greinin fjallaði ekki alltaf einungis um jafnrétti heldur væri hún oft notuð til að gagnrýna karlmennsku og setja hana í neikvætt samhengi.

„Kenna þeim að skammast sín fyrir karlmennsku, kalla hana eitraða og annað eins,“ sagði hann og bætti við að slíkt væri varasöm nálgun í menntakerfinu.

Segir trans hugmyndafræði fléttast inn í kennslu

Í ræðunni fjallaði Snorri einnig um það sem hann kallaði trans hugmyndafræði og sagði hana vera orðin hluta af kynjafræðikennslu. Hann lýsti andstöðu sinni við þá nálgun að kyn væru skilgreind sem fjölmörg og að fólk gæti sjálft ákveðið kyn sitt.

Hann sagði jafnframt að fregnir hefðu borist af því að í íslenskum framhaldsskólum hefðu komið upp tilvik þar sem starfsfólk hefði sætt miklum þrýstingi, eða jafnvel átt á hættu að missa starf sitt, fyrir að taka ekki þátt í þessari hugmyndafræði.

Að lokum sagði Snorri að hann gæti ekki stutt það að slíkar áherslur yrðu gerðar að lagaskyldu um allt land.

„Þannig að þetta lagaskyldu um allt land, það mun ég ekki skrifa upp á,“ sagði hann að endingu

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing