Gagnrýnir Gunnar Smára harðlega: „Vildi eiga kökuna og éta hana líka“

Andri Sigurðsson hefur birt færslu á Facebook þar sem hann gagnrýnir Gunnar Smára Egilsson og pólitíska afstöðu hans harðlega.

Færslan kemur í kjölfar pistils sem Gunnar Smári skrifaði um prófkjör og mögulega framtíð borgarstjórnar í Reykjavík.

Auglýsing

Í pistlinum setur Gunnar Smári fram þá sýn að úrslit prófkjörs muni ráða úrslitum um hvert borgarstjórnarmeirihlutinn stefni.

Hann heldur því fram að sigur Heiðu Bjargar myndi tryggja vinstri meirihluta, en sigur Péturs Marteinssonar gæti leitt til samstarfs Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks.

Slíkt myndi að hans mati opna tækifæri fyrir framboð Sönnu Magdalenu til borgarstjórnar, án þess að Heiða né Pétur næðu embættinu.

Orðaskipti kveikja gagnrýni

Undir færslu Gunnars Smára urðu orðaskipti sem urðu kveikjan að færslu Andra.

Þar spurði Gunnar Smári annan aðila hvernig hægt væri að skýra það að einstaklingur sem bauð sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn árið 2009, eftir hrun, vildi leiða Samfylkinguna.

Í svari benti Páll Baldvinsson á að fólk gæti einfaldlega skipt um skoðun og rifjaði jafnframt upp að Gunnar Smári hefði sjálfur eitt sinn lýst sig sjálfstæðismann í sín eyru.

„Sósíalismi sem nær ekki lengra“

Í færslu sinni segir Andri Sigurðsson að sósíalismi Gunnars Smára nái ekki lengra en að tryggja að vinstri kratar haldi völdum fram yfir hægri krata.

Hann fullyrðir að Gunnar Smári hafi aldrei ætlað sér að tala fyrir raunverulegum sósíalisma, þar sem slíkt myndi gera hann að jaðarmanni í íslensku samfélagi.

Andri heldur því fram að ekki sé hægt að byggja upp fjölmiðil innan kapítalísks samfélags, með reglulegri aðkomu stjórnmálaelítunnar, á sama tíma og barist sé fyrir róttækum sósíalisma.

Hann bendir á að sjaldan sé rætt um sósíalisma á Samstöðinni um þessar mundir og segir að Gunnar Smári muni aldrei njóta fullrar virðingar kratanna, sem að hans mati fyrirlíti alla sem standa lengra til vinstri en þeir sjálfir og að fólk sem hallast til vinstri hati það af meiri hörku en hægrið.

Kallar eftir marxískri hreyfingu frá grunni

Að mati Andra er aðeins ein leið til að byggja upp raunverulega sósíalíska hreyfingu með möguleika á raunverulegum breytingum.

Sú leið sé að byggja hana frá grunni á marxískum hugmyndum og stéttarhugtakinu, með þjálfuðu fólki sem hafi skýr markmið og fræðilegan grunn.

Slík hreyfing eigi að vera byggð upp af verkafólki sjálfu.

Í lokin segir Andri að Gunnar Smári hafi viljað eiga kökuna og éta hana líka, með því að reyna að samræma sósíalisma og samstarf við vinstri arm nýfrjálshyggjunnar í Samfylkingunni og Pírötum.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing