Gagnrýnir hræsni í femínískri umræðu

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir umræðuna um styttingu vinnuvikunnar og áhrif hennar á foreldra og konur einkennast af tvískinnungi. Þetta kom fram í hlaðvarpinu Einni pælingu þar sem Sólveig var gestur ásamt Vilhjálmi Birgissyni.

Segir ekki hlustað á konur

Sólveig segir að þeir sem hafi almennt talað fyrir femínisma og lagt áherslu á að „hlusta á konur“ hafi í þessu máli brugðist eigin prinsippum.

Auglýsing

„Sem tala allra jafna fyrir femínisma og segir að hlusta eigi á konur, segir svo bara nei, nú ætlum við ekki að hlusta á konur, nú þurfum við bara að hugsa um foreldrana,“ segir hún og bætir við að umræðan hafi einkennst af mikilli hræsni.

Hún segir að foreldrar séu sagðir vera í svo slæmu ástandi að þeir sitji heima grátandi og feður komist í kulnun, og að það sjónarmið hafi fengið meira vægi en raddir kvenna sem starfa í umönnunarstörfum.

„Ég hef aldrei á ævinni upplifað jafn mikla hræsni og tvískinnung og ég sé birtast í þessu máli,“ segir Sólveig.

Kalla styttinguna „katastrófu“ í umönnunarstörfum

Þórarinn bendir á að þegar stytting vinnuvikunnar var kynnt hafi sumir haldið því fram að hún myndi hvorki hafa áhrif á framleiðni né kosta neitt.

„Mögulega hjá ykkur í Borgartúninu,“ segir hann og gefur í skyn að aðstæður á skrifstofum séu ólíkar því sem gerist í umönnunarstörfum.

Vilhjálmur tekur undir og segir að í leikskólum, dvalarheimilum og öðrum störfum þar sem unnið sé beint með fólki hafi breytingarnar verið lítið undirbúnar.

„Þetta var algjör katastrófa,“ segir Þórarinn um áhrifin í félags- og umönnunarþjónustu.

Vildu laga kjör fyrst

Vilhjálmur segir að hann og Sólveig hafi á sínum tíma verið sammála um að fyrst þyrfti að bæta kjör starfsfólks áður en farið yrði í styttingu vinnuvikunnar.

„Við hefðum átt að byrja á því að lagfæra kjörin þannig að fólk gæti framfleytt sér frá mánuði til mánaðar og haldið reisn sinni áður en þetta skref var stigið,“ segir hann.

Að hans mati hafi styttingin fallið í fangið á aðilum án þess að fullnægjandi undirbúningur færi fram, sérstaklega í þeim geirum þar sem ekki sé hægt að loka eftir hentisemi.

Á almennum vinnumarkaði, segir hann, hefði eina raunverulega afleiðingin verið sú að vinna færðist af dagvinnu yfir í yfirvinnu, þar sem 40 stunda vinnuvika sé í reynd lágmark hjá mörgum.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing