Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, skrifar á samfélagsmiðla að nýtt hælisleitendakerfi Evrópusambandsins, sem framkvæmdastjórn ESB hefur nú samþykkt, feli í sér róttækar breytingar fyrir aðildarríkin og fordæmalaus sektarákvæði.
20 þúsund evra sekt fyrir hvern hælisleitanda sem ríki tekur ekki við
Snorri útskýrir að frá og með næsta ári verði ríki innan ESB sem neita að taka við hælisleitendum samkvæmt úthlutunarkerfi sambandsins sektuð.
Ríki sem vilja afþakka að taka við umsækjendum þurfa að greiða 20 þúsund evrur fyrir hvert slíkt tilvik, eða um þrjár milljónir króna.
Að sögn Snorra sé markmiðið að koma á sameiginlegum sektarsjóði vegna flóttamannamála.
Hann segir ríki á borð við Pólland og Ungverjaland, sem lengi hafi staðið gegn skyldubundinni móttöku, hafa barist af hörku gegn tillögunni en án árangurs.
„Svona var þetta keyrt í gegn. Þannig er lýðræðið í Evrópusambandinu,“ skrifar Snorri og gagnrýnir það sem hann kallar yfirgang gagnvart ríkjum sem vilji ekki taka þátt í kerfinu.
Varar við að Ísland taki þátt í sektakerfi ESB
Snorri segir mikilvægt að Ísland, sem hann kallar „frjálst og fullvalda ríki“, haldi fullu ákvörðunarvaldi yfir eigin landamærum.
Hann gagnrýnir hóp þingmanna sem vilji framselja vald til ESB á þessu sviði og nefnir sérstaklega að dómsmálaráðherra hygðist eftir áramót hefja innleiðingu svonefnds verndarsamkomulags Evrópusambandsins.
Hann segir mikilvægt að Ísland innleiði aðeins þau ákvæði sem styrki úrræði stjórnvalda til að verja landamærin.
„Ég ætla rétt að vona að við álpumst ekki inn í hinn nýja sektarsjóð Evrópusambandsins, sem við höfum ekkert með að gera,“ bætir hann við.
„Ekki missa sjónar af mikilvægustu málunum“
Snorri segir að umræður á Alþingi séu líflegar og oft þrasað um ýmislegt, en hann leggur áherslu á að stærstu stefnumálin megi ekki gleymast.
Hann mun á morgun standa fyrir sérstakri umræðu um dvalarleyfi og innflytjendamál í þingsal.
„Það er nóg að gerast í þinginu,“ skrifar hann, „en mikilvægt að missa ekki sjónar af þessum mikilvægustu viðfangsefnum stjórnmálanna á okkar tímum.“