Gagnrýnir ríkisstjórnina vegna atvinnuleysis og innflytjendamála – „Hvað eru menn að spá?“

Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, gagnrýndi ríkisstjórnina í færslu á samfélagsmiðlum og í ræðu á Alþingi í gær. Hann segir atvinnuleysi hafa aukist að undanförnu og telur stjórnvöld ekki bregðast rétt við stöðunni.

Samkvæmt Snorra mælist atvinnuleysi um 10 prósent meðal erlendra ríkisborgara á meðan það sé nánast ekkert meðal Íslendinga, líkt og fram hafi komið í ræðu forsætisráðherra á Alþingi. Þá bendir hann á að í fjárlögum fyrir árið 2026 nemi kostnaður ríkisins vegna atvinnuleysisbóta og tengdum aðgerðum tæpum 44 milljörðum króna.

3.400 fluttu til landsins þrátt fyrir aukið atvinnuleysi

Auglýsing

Snorri segir að ætla mætti að aukið atvinnuleysi myndi draga úr innflytjendastraumi til landsins. Raunin hafi þó verið önnur. Á síðasta ári hafi 3.400 erlendir ríkisborgarar flutt til Íslands, sem sé vel yfir árlegu meðaltali á þessari öld, þrátt fyrir hækkandi atvinnuleysi.

Hann segir hið hreyfanlega vinnuafl innan EES ekki hegða sér í raun eins og kerfið geri ráð fyrir, það er að flytjast þangað sem þörf sé á vinnuafli og fara aftur þegar aðstæður breytast. Á sama tíma haldi útstreymi Íslendinga áfram og fleiri flytjist brott en snúi heim.

Vill harðari aðgerðir og brottvísanir

Í ræðu á Alþingi hvatti Snorri fjármálaráðherra til að beita öllum tiltækum ráðum til að tryggja að velferðarkerfið þjónaði fyrst og fremst hagsmunum íslensks almennings. Hann sagði kerfið varnarlaust fyrir misnotkun, sérstaklega í þeirri viðkvæmu stöðu sem upp sé komin.

Hann gagnrýnir að ríkisstjórnin hafi ekki klárað að stytta atvinnuleysisbótatímabilið úr 30 í 18 mánuði, eins og áður hafi verið boðað. Þá telur hann stjórnvöld ekki nýta lagaheimildir til að brottvísa útlendingum, þar á meðal EES borgurum, sem uppfylli ekki lengur skilyrði til að dvelja hér á landi og séu hvorki í vinnu né virkri atvinnuleit.

Segir ríkisstjórnina fara í öfuga átt

Snorri rifjar upp orð forsætisráðherra frá kosningabaráttunni fyrir tveimur árum um að opin landamæri og velferðarkerfi fari ekki saman. Hann segir ríkisstjórnina þó ekki hafa unnið eftir þeirri línu frá því hún tók við völdum.

Þvert á móti sé verið að gera velferðarkerfið ennþá opnara fyrir erlenda ríkisborgara. Hann nefnir þar nýtt frumvarp heilbrigðisráðherra um að stytta biðtíma eftir aðgangi að sjúkratryggingum úr sex mánuðum í þrjá.

Snorri spyr hvaða hvata slík stefna skapi og hvort þróunin skjóti ekki almennt skökku við í ljósi stöðunnar á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing