Einar Jóhannes Guðnason gagnrýnir harðlega umfjöllun nokkurra nafngreindra aðila um TikTok myndband sem tengt hefur verið við Miðflokkurinn.
Í færslu á Facebook segir hann að rangfærslur hafi verið settar fram og að málið byggist á því að viðkomandi hafi ekki kynnt sér efnið nægilega.
Í færslunni gagnrýnir Einar sérstaklega Mugison og Egil Helgason fyrir að vilja draga Miðflokkinn til ábyrgðar.
Hann segir það „mjög vandræðalegt“ að vilja draga flokkinn til ábyrgðar á efni sem hann hafi hvorki framleitt né birt.
Ekki myndband á vegum flokksins
Að sögn Einars var myndbandið ekki birt af Miðflokknum sjálfum né aðila á hans vegum, heldur af einstaklingi sem styður flokkinn, hann segist þó ekki hafa neitt út á myndbandið að setja.
Hann bendir á að myndbandið endi á skilaboðunum „Kjósum Miðflokkinn“, en að það eitt og sér jafngildi ekki formlegri ábyrgð flokksins á efninu.
Einar segir að Eiríkur Rögnvaldsson hafi fyrst vakið athygli á myndbandinu og lagt það fram til skoðunar.
Skot á umræðuhefðina
Að lokum bendir Einar á að þeir sem oft saka aðra um upplýsingaóreiðu ættu að líta í eigin barm.
Hann segir kaldhæðnislega að áramótaheit þeirra ætti að vera að kynna sér mál betur áður en þeir „missa sig á lyklaborðinu“.
Tilkynntur fyrir færsluna?
Stuttu eftir færsluna hvarf Facebook aðgangur Jóhannesar af Facebook og því ekki hægt að tengja beint við færslu hans, en Nútíminn hafði samband við hann og segir hann að svo virðist sem hann hafi verið tilkynntur ítrekað fyrir færslu sína og vegna þessa þurfi hann að standa í að fá aðganginn sinn aftur.

UPPFÆRT:
Einar hefur fengið aðganginn sinn aftur.