Davíð Hreins birti myndband þar sem hann gómaði mann sem var að ræna dósapokum sem hann geymdi við útidyrnar heima hjá sér. Nútíminn hafði samband við Davíð sem sagði að dósirnar væru upp í kostnað við skólaferðalag sem dóttir hans fer í þegar 10. bekk lýkur.
Í myndbandinu sést þar sem Davíð er að láta manninn skila dósunum og sá virðist ekki ánægður með að hafa verið nappaður við iðju sína og myndaður í bak og fyrir.
Aðspurður hvort maðurinn hafi þráast við eða reynt að komast undan segir Davíð að maðurinn hafi muldrað eitthvað á tungumáli sem hann skildi ekki en ekki sýnt neina mótspyrnu þegar kom að því að skila ránsfengnum.
Davíð hélt fyrst að ruslabíllinn væri mættur fyrir utan hjá sér og var smá stund að átta sig á því að þarna væri á ferð óprúttinn aðili sem hafði ekkert gott í hyggju.
Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan.