Netrisinn Google hefur gagnrýnt ríkisstjórn Bretlands harkalega og varar við því að framkvæmd nýrra netöryggislaga geti leitt til skerðingar á tjáningarfrelsi á netinu.
Fyrirtækið segir að fyrirhugaðar reglur Ofcom samkvæmt Online Safety Act gangi lengra en löggjafinn hafi ætlað og geti falið í sér að löglegt efni verði dregið úr sýnileika.
Online safety act eru ný bresk lög sem ætlað er að draga úr dreifingu ólöglegs og skaðlegs efnis á netinu, með sérstakri áherslu á vernd barna, en jafnframt er kveðið á um að réttur notenda til tjáningarfrelsis skuli virtur.
Áhyggjur af „mögulega ólöglegu“ efni
Í umsögn sinni til Ofcom gagnrýnir Google áform um að skylda netsíður til að greina og takmarka dreifingu efnis sem flokkað er sem „mögulega ólöglegt“, þar á meðal hatursorðræðu og hvatningu til ofbeldis.
Slíkar aðgerðir myndu, að mati fyrirtækisins, óhjákvæmilega leiða til þess að dreifing á löglegt efni myndi síður ná til notenda og þar með skerða tjáningarfrelsi umfram það sem lögin geri ráð fyrir.
Ofcom hafnar gagnrýninni
Ofcom hefur hafnað þessum áhyggjum og segir ekkert í tillögum sínum krefjast þess að löglegt efni verði fjarlægt.
Talsmaður eftirlitsstofnunarinnar segir lögin vera skýr og þeim beri að vernda rétt notenda til tjáningarfrelsis, en jafnframt að bregðast við hraðri dreifingu ólöglegs efnis.
Vaxandi spenna milli Bretlands og Bandaríkjanna
Ágreiningurinn er hluti af vaxandi spennu milli Bretlands og Bandaríkjanna um regluverk á internetinu.
Í þessum mánuði stöðvaði Hvíta húsið viðræður um samninga vegna tæknisamstarfs upp á tugi milljarða punda og hafa bandarísk stjórnvöld lýst óánægju með bresku lögin.
Donald Trump og bandamenn hans hafa ítrekað gagnrýnt löggjöfina og varað við áhrifum hennar á tjáningarfrelsi.
Harðorð gagnrýni frá bandarískum leiðtogum
JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, hefur sakað Bretland um að feta dökka braut í málefnum tengdum tjáningarfrelsi.
Þá hefur samfélagsmiðillinn X varað við því að tjáningarfrelsi muni snarminnka undir nýju regluverki.
Afleiðingar og framtíðarsýn
Samkvæmt Ofcom yrði efni sem merkt er sem „mögulega ólöglegt“ undanskilið frá öllum algorythma sem mælir með efni, sem í raun drepur alla dreifingu þess í fæðingu og yrði falið nema notendur leiti sérstaklega eftir því.
Þetta myndi einnig gilda um fréttaefni og efnið merkt sem slíkt þar til mannlegir stjórnendur hafa farið yfir það.
Google segir slíka meðferð á efni vera ólöglega og að þetta sé ekki í anda laganna sem breska þingið samþykkti.
Ofcom bendir aftur á móti á að mörg tæknifyrirtæki beiti þegar sambærilegum aðferðum gagnvart jaðarefni.
Sérfræðingur Google segir muninn þó vera þann að til að efni lendi í því að þurfa samþykki mannlegra stjórnenda þurfi að vera búið að tilkynna það sem ólöglegt og á þessu tvennu sé mikill grundvallarmunur.