Gríðarvinsæll erlendur miðill fjallar um föður á Íslandi sem missti forræði yfir syni sínum vegna andstöðu við „kynleiðréttingu“

Faðir búsettur á Íslandi, Alexandre Rocha, segir að 10 ára sonur hans hafi verið tekinn af honum með dómsúrskurði í desember síðastliðnum eftir ágreining milli foreldra um kynvitund barnsins og mögulegt kynleiðréttingarferli.

Málið hefur nú vakið alþjóðlega athygli eftir að hinn umdeildi og vinsæli bandaríski samfélagsmiðill Libs of TikTok fjallaði um það og birti yfirlýsingu frá föðurnum. Þar er fjalla um málið sem forsjármál þar sem foreldri missir forsjá vegna andstöðu við kynleiðréttingu barns.

Segir dóminn tengjast afstöðu hans til kynleiðréttingar

Auglýsing

Í yfirlýsingu frá föðurnum segir hann að ástæðan fyrir forsjársviptingunni hafi verið sú að hann hafi ekki viljað samþykkja að sonur hans gengi í gegnum kynleiðréttingarferli eða skilgreindi sig sem stúlku við 10 ára aldur.

„Ekkert foreldri ætti að ganga í gegnum þetta. Börn eiga skilið að lifa í friði frá róttækri hugmyndafræði,“ segir hann meðal annars og bætir við að hann telji barn sitt ekki vera með þroska til að geta veitt upplýst samþykki til að gangast undir hormónameðferð.

Hann segir jafnframt að barnið hafi verið greint á einhverfurófi og að hann telji mikilvægt að tekið sé mið af taugaþroska og stöðu barnsins áður en gripið sé til varanlegra inngripa sem aldrei verða tekin til baka.

Segir fjölskylduna í áfalli

Faðirinn kveðst ekki hafa fengið að hitta son sinn í nokkra mánuði og að fjölskyldan sé miður sín vegna stöðunnar. Hann segist nú vera að undirbúa áfrýjun á dómnum með það að markmiði að fá aukinn umgengnisrétt við barn sitt og koma í veg fyrir að það fari í læknisfræðilegt ferli sem hann telur hættulegt.

Í fyrri umfjöllun Nútímans um málið kom fram að dómstóll hefði komist að þeirri niðurstöðu að sameiginlegt forræði foreldra væri ekki lengur æskilegt vegna „djúps og viðvarandi ágreinings,“ meðal annars um málefni tengd kynvitund barnsins. Þar kom einnig fram að báðir foreldrar hefðu verið metnir hæfir til að fara með forræði.

Faðir á Íslandi missir forsjá vegna ágreinings um transhugmyndafræði

Í dómsskjölum segir einnig að líklega sé móðirin komin lengra í ferlinu en barnið sjálft.

Ágreiningur um „kynama“

Í matsgögnum var vísað til ráðgjafar og hugtaksins „kynami“ í tengslum við líðan barnsins. Faðirinn hefur gagnrýnt þá nálgun og telur að ekki hafi verið tekið tillit til annarra þátta, þar á meðal greininga á taugaþroskaröskunum og félagslegrar stöðu barnsins.

Málið er nú til meðferðar á áfrýjunarstigi að sögn föðurins.

Yfirlýsingu föðursins er hægt að sjá í heild sinni hér fyrir neðan ásamt íslenskri þýðingu.

„Ég heiti Alexander, faðir, búsettur á Íslandi, og í desember síðastliðnum var sonur minn tekinn af mér með dómsúrskurði. Ástæðan var sú að ég vildi ekki leyfa syni mínum að fara í kynleiðréttingarferli og skilgreina sig sem stúlku aðeins 10 ára gamall. Sem faðir vil ég ekki að slíkt gerist fyrir barnið mitt, sem hefur þegar verið greint á einhverfurófi.

Ég tel að barnið mitt eigi ekki að vera sett í inngrip sem hefur afleiðingar sem munu líklega hafa áhrif á hann alla ævi, eins og hormónablokkerum eða meðferð sem getur haft varanleg áhrif. Slík inngrip geta haft veruleg áhrif á líkama hans, en einnig huga hans. Ég hef ekki fengið að hitta son minn í marga mánuði og fjölskylda mín er algjörlega miður sín, eins og skiljanlegt er. Vegna þessa fæ ég ekki að vera sá fyrir barnið mitt sem ég veit ég get verið.

Ég er að berjast fyrir því að áfrýja þessari dómsniðurstöðu og fá barnið mitt aftur. Ekkert foreldri ætti að þurfa að ganga í gegnum þetta. Börn eiga að fá að lifa frjáls frá róttækri hugmyndafræði sem þrýstir á þau að taka ákvarðanir um líf sitt sem þau skilja ekki enn.“

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing