Grímur Grímsson: „Augljóslega brot“ ef upplýsingar hafa lekið frá lögreglu

Telur mögulegt lekamál geta verið brot á þagnarskyldu – Segir málið „rosalega erfitt“ fyrir sig sem samflokksmaður Guðbrands Einarssonar

Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir að það væri „augljóslega einhvers konar brot“ á þagnarskyldu ef upplýsingar um yfirheyrslu Guðbrands Einarssonar, fyrrverandi þingmanns Viðreisnar, hefðu lekið frá lögreglu til fjölmiðla.

Auglýsing

Þetta kom fram í samtali Gríms við blaðamann Nútímans, þar sem rætt var um þá staðreynd að Vísir birti nýlega upplýsingar um að Guðbrandur hefði verið yfirheyrður árið 2012 vegna tilraunar til vændiskaupa – máli sem hvorki leiddi til kæru né ákæru á sínum tíma, en varð til þess að hann sagði af sér þingmennsku þegar það komst í hámæli nú fyrir helgi.

„Eitthvað sem enginn ætti að geta komist í“

Blaðamaður benti í samtalinu á að um væri að ræða yfirheyrslu sem væri yfir þrettán ára gömul og spurði hvort ekki væri augljóst að upplýsingarnar hlytu að hafa komið frá lögreglunni sjálfri.

„Þetta er náttúrlega bara yfirheyrsla frá árinu 2012. Maðurinn er hvorki kærður né ákærður. Eru þetta ekki gögn sem eru þess eðlis að það er eitthvað sem enginn ætti að geta komist í nema einhver frá lögreglunni hafi lekið því?“ spurði blaðamaður.

Grímur sagðist ekki vita hvaða upplýsingar Vísir hefði haft undir höndum, en viðurkenndi að ef þær byggðu eingöngu á því sem kom fram í yfirheyrslunni „þá gæti kannski vaknað sá grunur“ um leka.

„Ef upplýsingar hafa farið frá lögreglu, eins og þú segir, ef að við gætum gefið okkur það, þá væri það augljóslega einhvers konar brot,“ sagði Grímur og bætti við að slíkt væri brot á þagnarskyldu.

Hann tók þó fram að hann vildi ekki fullyrða að svo væri. „Það getur auðvitað eitthvað annað hafa orðið þess valdandi,“ sagði hann og vísaði til þess að það væri í höndum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eða ríkislögreglustjóra að svara því hvort málið væri til skoðunar.

„Rosalega erfitt“ fyrir sig persónulega

Blaðamaður spurði Grím einnig hvernig honum hefði liðið þegar fréttirnar bárust, enda um að ræða samflokksmann hans á þingi.

„Þetta er náttúrlega bara rosalega erfitt,“ sagði Grímur. „Mér finnst þetta allt mjög erfitt og þó ég auðvitað fordæmi kaup á vændi þá ætla ég ekki að fara skilgreina Guðbrand Einarsson út frá því.“

Hann sagði þó að þetta væri engu að síður eitthvað sem Guðbrandur hefði ætlað sér að gera, eða að minnsta kosti reynt að gera, samkvæmt þeim upplýsingum sem liggja fyrir.

Elliði Vignisson segir vonbrigði að enginn hafi komið Guðbrandi til varnar

Umdeild löggjöf – Ísland og Svíþjóð sér á báti

Í samtalinu var einnig rætt um sérstöðu íslensku laganna um vændi, þar sem sala á vændi er refsilaus en kaup eru ólögleg – svokallað „norræna módelið“ sem Ísland tók upp að sænskri fyrirmynd.

Blaðamaður benti á að þetta fyrirkomulag væri nánast einsdæmi í heiminum og að mörgum, þar á meðal kynlífsverkafólki sjálfu, þættu lögin einkennileg.

Grímur tók undir að vændi væri í einhverri mynd leyfilegt í mörgum Evrópulöndum, en áréttaði að kaup á vændi hefðu lengi verið lögbrot á Íslandi, á meðan salan hefði verið gerð refsilaus.

Málið enn í lausu lofti

Hvorki liggur fyrir hvort lögregla hyggst rannsaka mögulegan leka né hvort einhver innan embættisins hafi verið kallaður til ábyrgðar. Þá hefur Guðbrandur Einarsson ekki tjáð sig frekar um málið eftir að hann sagði af sér þingmennsku.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing