Grindvískir fiskvinnslumenn heiðraðir fyrir ósérhlífni og seiglu – Trillukarl ársins útnefndur

Við opnun árlegrar Sjávarútvegssýningar í Laugardalshöllinni í síðustu viku voru veittar tvær sérstakar viðurkenningar fyrir framúrskarandi framlag til sjávarútvegsins.

Arnar Magnússon, trillukarl úr Garði og Suðurnesjamaður ársins 2024, var heiðraður sem Trillukarl ársins.

Auglýsing

Jafnframt hlutu starfsmenn í fiskvinnslu í Grindavík viðurkenningu fyrir ómetanlegt starf undir afar erfiðum kringumstæðum.

Bjargaði lífi vinar síns eftir bátaárekstur

Það var Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, sem afhenti Arnari viðurkenninguna og lýsti því hvernig hann sýndi mikla yfirvegun og snarræði þegar bátur vinar hans hvolfdi eftir árekstur norðvestur af Garðskaga.

Arnar náði að bjarga manninum um borð og hlúði að honum þar til aðstoð barst.

Þessi hetjudáð vakti athygli og varð meðal annars til þess að Arnar var útnefndur Suðurnesjamaður ársins af Víkurfréttum í lok síðasta árs.

Grindvíkingar sýna ótrúlega úthaldsemi

Við sama tilefni fengu starfsmenn sjávarútvegsfyrirtækja í Grindavík viðurkenningu frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi fyrir að hafa haldið úti störfum við afar krefjandi aðstæður eftir eldgos og jarðhræringar í bænum.

Jón Steinar Sæmundsson, verkstjóri hjá Vísi hf., veitti verðlaununum viðtöku viðurkenningunni fyrir hönd starfsfólksins.

„Það er ótrúlegt hvað hefur tekist að halda gangandi í Grindavík þrátt fyrir allt sem gengið hefur á,“ sagði hann í ræðu sinni við afhendinguna.

„Starfsfólkið hefur staðið sína plikt með mikilli reisn og er sannarlega verðugt þessa heiðurs.“

Fréttin birtist fyrst í Víkurfréttum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing