Lögreglan á Austurlandi hefur nú til rannsóknar tvö mál þar sem grunur leikur á ólöglegum hreindýraveiðum. Í öðru málinu voru þrír einstaklingar stöðvaðir í Berufirði með hreindýratarf sem hafði þegar verið skorinn niður og úrbeinaður að hluta.
Austurfrétt greindi fyrst frá málinu á þriðjudag.
Voru án leiðsögumanns
Eftirlitsmaður Náttúruverndarstofnunar fór inn á veiðisvæði 7 síðastliðinn föstudag eftir að ábending barst um grunsamlegar veiðar.
Hann rakst síðar á þrjá einstaklinga í Berufirði. Við athugun kom í ljós að þeir voru með hreindýratarf í bílnum. Einn mannanna var með gilt veiðileyfi fyrir tarfi en enginn hreindýraveiðileiðsögumaður var með í för, líkt og lög gera ráð fyrir.
Málið var þegar tilkynnt til lögreglu og hafa skýrslur verið teknar af hlutaðeigandi.
Jóhann G. Gunnarsson, sérfræðingur hjá Náttúruverndarstofnun, segir afar sjaldgæft að veiðimenn séu gripnir við brot af þessu tagi.
„Það hafa verið kannaðar ýmsar ábendingar í gegnum árin en það er mjög sjaldgæft að menn séu gripnir við veiðar. Það hefur þó gerst áður,“ segir hann við Austurfrétt.
Leifar af tarfi fundust í Smjörfjöllum
Annað mál kom upp fyrr í ágúst þegar leiðsögumaður og veiðimaður fundu leifar af hreindýrstarfi í Smjörfjöllum á veiðisvæði 1.
Tarfurinn virðist hafa verið fleginn á staðnum og kjötið tekið. Náttúruverndarstofnun kannaði hvort löglegur veiðimaður hefði verið að verki en komst að þeirri niðurstöðu að svo væri ekki.
Ekki liggur fyrir hverjir voru þar að verki. Jóhann segir þó staðsetninguna benda til þess að viðkomandi hafi þekkt svæðið vel.
„Brotaviljinn var einbeittur“
Jóhann segir málin valda mikilli reiði meðal löglegra veiðimanna og leiðsögumanna.
„Brotavilji veiðimannanna sem voru stöðvaðir í Berufirði var einbeittur. Þeir hefðu allt eins getað farið öðru sinni og þá haft leiðsögumann með sér,“ segir hann.
Hann segir yfirgnæfandi meirihluta veiðisamfélagsins hafna því að menn taki lögin í sínar eigin hendur.
Alls hafa um 230 hreindýr verið veidd það sem af er tímabilinu en kvóti ársins er 936 dýr.