Gunnar Smári heldur því fram að Snorri Másson vilji breiða út „karllæga kristna hvíta yfirburðarhyggju“

Fjölmiðlamaðurinn Gunnar Smári Egilsson setti harðorð ummæli undir færslu Egila Helgasonar á þar sem Egill fjallaði um myndband merkt Miðflokknum og slagorðið „Gerum Ísland frábært aftur“.

Í færslu sinni rifjaði Egill upp samfélagsaðstæður á Íslandi á árunum skömmu eftir síðari heimsstyrjöld og velti fyrir sér boðskap slagorðsins.

Auglýsing

Niðurstaða hans var sú að þrátt fyrir framfarir á þeim tíma væru fáir líklegir til að vilja snúa aftur til slíkra aðstæðna.

„Karllæg kristin hvít yfirburðarhyggja“

Gunnar Smári tók hins vegar umræðuna mun lengra í athugasemd sinni.

Þar segir hann að slagorð á borð við þetta eigi rætur að rekja til „karllægrar kristinnar hvítrar yfirburðarhyggju“ sem hann telur að Snorri Másson vilji útbreiða á Íslandi.

Hann líkir framsetningunni við boðskap trúboða og segir hugmyndina byggja á því að allt hafi verið betra þegar samfélagið var einsleitara, karllægt og kristið.

Varar við útilokun jaðarhópa

Í athugasemdinni lýsir Gunnar Smári þeirri sýn að slík hugmyndafræði líti á umburðarlyndi sem synd og að ákveðnir hópar samfélagsins, þar á meðal transfólk, konur, samkynhneigðir og aðrir jaðarsettir hópar, séu gerðir að blórabögglum.

Hann varar við afleiðingum þess þegar samfélög snúast gegn fjölbreytileika og réttindum minnihlutahópa.

Hann segir þetta ekki ólíkt þeirri hugmynd að frjálslyndi Weimar lýðveldisins hafi verið orsök nasismans, sem hann kallar ranghugmynd.

Að hans mati sé verið að kenna umburðarlyndi, mannréttindum og fjölbreytileika um samfélagslegan vanda.

Nú er komið að dómsdegi; transfólk, konur, samkynhneigðir, brúnir, feitir, veikir og önnur unzuverlässige elemente skulu hreinsuð út úr þjóðarlíkamanum, fólk sem fer í taugarnar á Trump og Snorra og þeim finnst sér ekki samboðið.“

„Við erum komin á þennan stað“

Í lok athugasemdarinnar segir Gunnar Smári að fólk geti verið hissa á því hversu langt umræðan sé komin, en að staðreyndin sé sú að Ísland sé nú komið á þennan stað í pólitískri orðræðu.

Hann lýkur með beinni áskorun til lesenda og spyr hvað ætli þeir að gera í stöðunni.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing