Frá því að Trump tók við sem forseti Bandaríkjanna hafa Demókratar höfðað fjölmörg dómsmál vegna forsetatilskipana hans. Hann hefur verið sakaður um einræðistilburði og að fara umfram valdsvið sitt. Dómstólar eru notaðir til að dæma um hvort að forsetar fari út fyrir valdsvið sitt og aldrei hafa verið fleiri dómsmál höfðuð en þegar Trump er forseti.
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur nú kveðið upp 27 úrskurði síðan að hann tók við sem forseti í janúar 2025. Þar af hefur hann unnið 23 sigra og einungis tapað tveimur málum. Þá voru tveir dómar hann vann að hluta til.
Í Bandaríkjunum eru 94 svæðisbundnir alríkisdómstólar með um 700 dómara og geta Demókratar valið hvar þeir leggja fram kærur á forsetatilskipanir Trumps. Meirihluti dómaranna voru útnefndir af Demókrötum. Þar hafa Demókratar haft betur í um 60% af 240 úrskurðum.
Þetta hefur leitt til ásakana um að Demókratar séu að misnota dómskerfið til að klekkja á Trump og Repúblikönum eftir að hafa tapað illa í lýðræðislegum kosningum á síðasta ári og eru nú með lítil völd. Í fyrra töpuðu Demókratar í forsetakosningum og eru einnig í minnihluti í efri og neðri deild Bandaríska þingsins.
Staða Demókrata er erfið. Ekki nóg með að þeir eru í minnihluta í bæðum þingdeildum og hafa tapað forsetaembættinu á þá sýna kannanir að þeir glíma við sögulegar óvinsældir. Í nýlegri könnun YouGov.com voru 64% spurðra með neikvæða skoðun á flokkunum en einungis 34% með jákvæða skoðun á flokknum. Til samanburðar eru um 55% með neikvæða skoðun á Repúblikanaflokknum og 42% með jákvæða skoðun á flokknum.