Hæstiréttur Bandaríkjanna staðfestir bann á trans fólki í hernum

Hæstiréttur Bandaríkjanna staðfesti að bann Donalds Trump forseta, á að transfólk geti þjónað í bandaríska hernum taki gildi, þrátt fyrir að lægra dómstig hafi reynt að stöðva úrskurðinn.

Með þessu gæti þúsundum hermanna verið vísað úr hernum án tafar.

Auglýsing

Í tilskipun sem forsetinn undirritaði þann 27. janúar sagði að „kynvitund“ sem samræmist ekki kyni einstaklings ætti ekki heima í hernum.

Varnarmálaráðuneytið fylgdi því eftir með tilkynningu um að trans hermenn þyrftu sérhæfða undanþágu til að fá að halda áfram þjónustu.

Dómurinn staðfesti ákvörðun undirréttarins frá 27. mars um að stöðva bannið tímabundið eða þar til Hæstiréttur landsins tæki málið fyrir.

Skipting í Hæstarétti

Ákvörðun Hæstaréttar var gefin út án undirskrifta einstakra dómara, eins og tíðkast í neyðartilvikum.

Hins vegar lýstu þrír dómarar, Sonia Sotomayor, Elena Kagan og Ketanji Brown Jackson, yfir opinberum andmælum.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing