Dómsmálaráðherra hugnast ekki að gera hlé á umsóknum um alþjóðlega vernd frá fólki sem ferðast til Íslands í því skyni að sækja um slíkt, að því er kom fram í máli hennar á Alþingi á föstudag.
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, beindi í umræðum um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrirspurn til Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um afstöðu hennar til breytinga á afgreiðslu hælisumsókna.
Þar lýsti Snorri tillögu Miðflokksins um að frysta afgreiðslu umsókna frá umsækjendum sem koma hingað til lands í því skyni að sækja um alþjóðlega vernd. Tillaga flokksins er á þá leið að hlé verði gert á afgreiðslu slíkra umsókna í fimm ár, um leið og þjónusta við þennan hóp verði felld niður.
Dómsmálaráðherra hafnaði þessari tillögu.
„Jú, við ætlum að halda áfram að taka á móti flóttamönnum, það ætlum við sannarlega að gera. Og jú, við viljum taka vel á móti því fólki sem hingað kemur til lands af því að því fylgja raunveruleg tækifæri til þátttöku í samfélaginu.
En ég er ósammála þingmanninum um það að við hættum að taka á móti fólki.
Ég er ósammála því, ég er algjörlega ósammála því. En ég vil að við séum með stjórn á aðstæðum, við séum með stjórn á málaflokknum, við séum með stjórn á landamærum,“ sagði Þorbjörg Sigríður.
Ítrekaði Snorri þá að hann væri að vísa til þess hóps sem hingað hefur ferðast gagngert til þess að sækja um vernd. Tillagan felist í að stöðva afgreiðslu þeirrar tilteknu tegundar umsókna.
„Þar með er ég náttúrlega ekki að tala um að það verði alfarið hætt að taka á móti öllum alveg,“ sagði Snorri.
„Við getum enn þá tekið okkar eigin ákvarðanir um að taka á móti ákveðnum hópum, bara ekki að beina straumi þeirra hingað til lands þannig að þau komi hingað til lands og sæki um.
Það segir maður í ljósi þeirrar reynslu sem við höfum haft á undanförnum árum að okkar umgjörð, okkar kerfi, hefur ekki ráðið við að fá fólk hingað í stríðum straumum sem sækir um, heldur hefur þetta einfaldlega valdið stjórnleysi. Það er staðan.
Og þegar hæstvirtur ráðherra talar um að ná stjórn á málinu þá er það tillaga mín að ná einmitt stjórn á því. Sem sagt, þú stjórnar því alveg hverjir koma, kvótaflóttamenn, aðrir eins. Þá hefurðu stjórn á aðstæðum í stað þess að hafa hérna stjórnlausan straum til landsins sem við eigum erfitt með að ná utan um og við höfum átt erfitt með að ná utan um hann. Leiðin til stjórnar, ef mönnum væri alvara, væri til dæmis þessi. Þannig að það er spurningin sem ég ítreka: Er það þá eitthvað enn þá sem hæstvirtur ráðherra hugnast ekki að gera?“ spurði Snorri.
Í næsta svari dómsmálaráðherra var fjallað um að aðrar aðgerðir á þessu sviði en ekki veitt svar við beinni spurningu þingmannsins.