Hakkar Jón Trausta á Heimildinni í sig og segir fjölmiðla komna með „Orange Man Bad“ heilkenni gagnvart Snorra Mássyni

Þórarinn Hjartarson, þáttastjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling, gagnrýnir harðlega umfjöllun fjölmiðla um Snorra Másson og segir hana bera keim af því sem hann kallar „Orange Man Bad“ heilkenni.

Hann segir Snorra hafa verið sakaðan um hvíta yfirburðarhyggju og samsæriskenningar á forsendum sem standist ekki nánari skoðun.

Segir gagnrýnina byggða á rangfærslum

Auglýsing

Í færslu sinni bendir Þórarinn á að Snorri hafi vakið athygli á þróun fólksfjölda á Íslandi og spurt hvernig hlutfall Íslendinga annars vegar og erlendra ríkisborgara hins vegar muni þróast á næstu árum.

Að mati Þórarins hafi Jón Trausti, ritstjóri Heimildarinnar, gert þessar áhyggjur tortryggilegar og afgreitt þær sem algjöra dellu og tálsýn sem Snorri væri að selja almenningi.

Þórarinn segir hann hafa fullyrt að engin ástæða væri til að hafa áhyggjur af því að Íslendingar gætu orðið minnihluti í eigin landi og að slíkar vangaveltur væru sambærilegar samsæriskenningum á borð við svokallaða Great Replacement Theory.

Bendir á mótsögn í umfjöllun Heimildarinnar

Þá bendir Þórarinn á að aðeins tveimur dögum síðar hafi sami fjölmiðill birt frétt þar sem farið var yfir nýjar tölur um fólksfjölda á Íslandi.

Þar hafi komið fram að íbúar landsins gætu orðið um 465.000 og að Íslendingum muni fækka á sama tíma.

Þórarinn segir þá umfjöllun staðfesta nákvæmlega það sem Snorri hafi verið að benda á.

Hann segir að ekki þurfi sérstaka tölfræðikunnáttu til að sjá að landsmönnum geti ekki fjölgað töluvert meðan Íslendingum fækkar án þess að hlutföllin breytist verulega.

Varar við að umræðan sé afgreidd með stimplum

Í færslunni líkir Þórarinn viðbrögðum fjölmiðla við því hvernig Donald Trump er oft afgreiddur í umræðunni, þar sem allt sem hann lætur frá sér sé túlkað á versta mögulega hátt.

Hann segir Snorra hafa verið settan í svipaðan ramma, þar sem málefnaleg umræða um fólksfjölda og stefnu í innflytjendamálum sé ekki tekin alvarlega heldur afgreidd sem öfgar eða samsæriskenningar.

Þórarinn segir að samkvæmt þeim spám sem nú liggi fyrir, sem Heimildir segir sjálf frá, muni þessi þróun eiga sér stað fyrir árið 2042.

Hann telur því óábyrgt að gera lítið úr umræðunni og segir það sturlun að Snorri Másson sé stimplaður með þeim hætti sem raun ber vitni.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing