Halda því fram að hægt sé að lesa skilaboð notenda eins vinsælasta skilaboðaforrits heims – Málsókn yfirvofandi

Alþjóðleg hópmálsókn gegn Meta, sem meðal annars á og rekur Facebook, hefur verið lögð fram í alríkisdómstóli í Kaliforníu þar sem því er haldið fram að fyrirtækið hafi villt um fyrir milljörðum notenda skilaboðaforritsins WhatsApp um raunverulegt öryggi skilaboða þeirra.

Í kærunni er fullyrt að svokölluð end to end dulkóðun virki ekki með þeim hætti sem notendum hefur verið lofað og að Meta geti í raun bæði geymt, greint og haft aðgang að skilaboðum sem eiga að vera einkamál.

Auglýsing

End to end dulkóðun á að virka þannig að skilaboðin séu bara læsileg fyrir sendanda og viðtakanda.

Fullyrða að skilaboð séu ekki jafn örugg og haldið er fram

Stefnendurnir koma frá Ástralíu, Brasilíu, Indlandi, Mexíkó og Suður Afríku og fara fram á að málið verði tekið fyrir sem hópmálsókn fyrir hönd WhatsApp notenda um allan heim.

Samkvæmt kærunni er innviðum WhatsApp þannig háttað að þeir grafi undan grundvallarhugmyndinni um end to nd dulkóðun.

Þar er því meðal annars haldið fram að gögn sem ættu að vera óaðgengileg jafnvel þjónustum fyrirtækisins séu varðveitt og að starfsmenn hafi möguleika á að skoða innihald skilaboða.

Byggt á upplýsingum uppljóstrara

Ásakanirnar byggja að sögn á framburði ónafngreindra uppljóstrara.

Í dómsskjölunum eru þó hvorki nöfn þeirra né nákvæm gögn lögð fram, heldur vísað almennt til innri upplýsinga sem eigi að sýna fram á að dulkóðunin standist ekki þær fullyrðingar sem fyrirtækið setur fram opinberlega.

Lögmenn frá tveimur bandarískum lögmannsstofum fara með málið, auk sjálfstæðs lögmanns.

Enginn þeirra hefur tjáð sig opinberlega utan þess sem kemur fram í kærunni.

Meta hafnar ásökunum alfarið

Meta hafnar öllum ásökunum og segir þær algerlega rangar.

Talsmaður fyrirtækisins lýsti málsókninni sem fjarstæðukenndri og hélt því fram að WhatsApp hafi notað viðurkennda end to nd dulkóðun í áratug og að aðeins þátttakendur samtals geti lesið eða hlustað á skilaboð.

Fyrirtækið segist hyggjast krefjast viðurlaga gegn lögmönnum stefnenda og telur málið byggt á ósannindum.

WhatsApp hefur lengi verið talið eitt öruggasta skilaboðaforrit sem hægt er að finna.

Málið er nú á frumstigi og óljóst er hvenær dómstóll mun taka afstöðu til þess hvort það verði tekið fyrir.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing