Þrír palestínskir menn voru teknir af lífi af öryggissveitum í Gasa á sunnudag, að sögn embættismanns innan stjórnar Hamas.
Mennirnir voru sakaðir um að hafa starfað með ísraelskum yfirvöldum.
Myndband af aftökunum fór í dreifingu á samfélagsmiðlum í gær.
Þar sést grímuklæddur maður flytja skilaboð til „samverkamanna hernámsins“ áður en þrír menn eru neyddir á hnén með bundið fyrir augu og skotnir til bana fyrir framan hóp fólks.
Reuters segir að staðsetningin hafi verið staðfest með loft- og ljósmyndum og sé miðborg Gasa.
Samkvæmt embættismanni Hamas voru aftökurnar framkvæmdar af svokallaðri „Sameiginlegri aðgerðasveit palestínska andspyrnunnar“ og áttu að vera sem skýr viðvörun til þeirra sem hyggja á samstarf við Ísrael.
Ísraelski herinn hefur ekki tjáð sig opinberlega um málið.
Vaxandi andstaða gegn Hamas innan Gasa
Tveimur árum eftir að stríðið í Gasa hófst hafa lítil vopnuð samtök, andsnúin Hamas, náð fótfestu á ýmsum svæðum í Gasa.
Hamas hefur áður birt upptökur af refsingum, meðal annars fyrir þjófnað og meint landráð, en þessi aftaka er talin með þeim grófari sem hafa verið sýndar opinberlega.
Frakkland viðurkennir frjálsa Palestínu
Sama dag og aftökurnar fóru fram lýsti Emmanuel Macron Frakklandsforseti því yfir á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna að Frakkland viðurkenni nú formlega Palestínu sem sjálfstætt ríki.
Um er að ræða táknræna en pólitískt þýðingarmikla yfirlýsingu.