Hárfínn sigur í hringnum: Hárkolla Jarrell Miller slegin af honum

Það er ekki á hverju kvöldi sem boxhringurinn breytist í hárgreiðslustofu en það gerðist í New York á laugardagskvöldið. Þungavigtarboxarinn Jarrell „Big Baby“ Miller vann nauman sigur á Kingsley Ibeh, en kvöldsins verður líklega helst minnst fyrir það að hárkolla Millers ákvað að yfirgefa bardagann á undan honum.

Á miðju upphöggi losnaði hárkollan, fór á flug og endaði fyrir utan hringinn. Miller lét ekki á sér standa, greip gripinn og kastaði honum glaðbeittur í áhorfendur sem trylltust af fögnuði.

Auglýsing

Eftir bardagann sló Miller á létta strengi og sagðist hafa verið í heimsókn hjá mömmu sinni viku fyrir bardagann og notað eitthvað sérlega kröftugt sjampó.

„Ég hringdi bara í umboðsmanninn og sagði: setjum þetta bara á í flýti,“ sagði Miller hlæjandi. „Svo sló Ibeh þetta einfaldlega af mér. Þetta var stórkostlegt. Ég sé húmorinn í þessu fyrst ég sigraði.“

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Tyrone (@tyrone)

Miller var heldur betur flottur eftir bardagann.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing