Harmageddon fjallar um ritlaun: „Ekki það sem við eigum að skera niður fyrst“

Umræður um ritlaun komu upp í nýjasta þætti Harmageddon þar sem Frosti Logason og Ingimar Elíasson tóku fyrir umdeilda samantekt Samtaka skattgreiðenda um ritlaun íslenskra rithöfunda síðustu 25 ár.

Samantektin vakti strax athygli á samfélagsmiðlum og kom fjöldi netverja með eigin skoðanir á málinu.

Auglýsing

Umsjónarmenn vöktu sérstaka athygli á því að umræðan væri oft takmörkuð við tölur en að listsköpun hefði margs konar verðmæti sem ekki mætti vanmeta.

294 mánuðir og 14 bækur: „Guðrún Eva fær um 12,6 milljónir á bók“

Í samantekt Samtaka skattgreiðenda kemur fram að Guðrún Eva Mínervudóttir hafi fengið samtals 294 mánuði í ritlaun frá árinu 2000 sem gerir hlutfall samþykktra umsókna hennar 98%.

„Þetta eru 12.664.000 krónur á hverja bók sem hún hefur gefið út,“ sagði hann og bætti við að hann hefði sjálfur ekki lesið verk hennar en efaðist ekki um ágæti hennar á ritvellinum.

Andri Snær gagnrýndur – en telur gagnrýnina ónákvæma

Sérstaka athygli vakti þegar þáttastjórnendur tóku fyrir Andra Snæ Magnason.

Í samantektinni kemur fram að hann hafi fengið ríflega 27 milljónir króna á hverja bók sem hann hefur gefið út, samkvæmt þeim tölum sem samtökin birtu.

„Við erum nískir á ríkisútgjöld í Harmageddon en þegar eitthvað skilar sér svona augljóslega til baka, þá erum við að tala um fjárfestingu, ekki eyðslu“

Frosti taldi þessa framsetningu rangláta og vitnaði í ítarlegt svar Andra Snæs:
„Þetta eru ekki bara fimm bækur. Hann hefur skrifað leikrit, handrit, heimildamyndir og verk sem eru enn í mótun. LoveStar fékk t.d. Philip K. Dick verðlaunin og Draumalandið er ein mest selda bók Íslandssögunnar.“

Andri Snær bendir á að bækur hans hafi selst í 110.000 eintökum hér á landi og skapað um 550 milljóna króna veltu.

Þáttastjórnendur tóku undir að þetta sýndi fram á fjárhagslegan ávinning af ritlaununum.
„Þetta hefði aldrei orðið að veruleika nema með styrkjum frá ríkinu,“ sagði Frosti.

Ingimar bætti við:
„Ef hann fær 10% af sölunni, þá eru það 55 milljónir en þetta skiptist á prentsmiðjur, forlag, virðisaukaskatt og fleira. Það má ekki horfa bara á launin heldur á afraksturinn.“

Gyrðir Elíasson nefndur sem einstakur menningararfur

Þeir Frosti og Ingimar lýstu báðir yfir mikilli aðdáun á Gyrði Elíassyni.
„Hann er með bestu ljóðskáldum heimsins. Hans verk eiga eftir að lifa í aldir,“ sagði Frosti og bætti við að „Gyrðir Elíasson á heima á sömu hillu og Íslendingasögurnar.“

Ingimar tók undir og sagði að þótt markaðurinn fyrir ljóð væri lítill, þá væri menningarlegt gildi verkanna óumdeilanlegt.

Þörf á gagnsæi og rými fyrir nýliða

Umsjónarmenn ræddu einnig um mikilvægi þess að úthlutun styrkja væri gagnsæ og að tryggja þyrfti rými fyrir nýja höfunda:
„Ég held að við gætum fundið leiðir til að opna fyrir fleiri, til að leyfa nýju fólki að komast að. Það er áhætta, en það er líka nauðsynlegt,“ sagði Ingimar.

Frosti var þó á því að stærstu nöfnin væru verðugir styrkþegar:
„Allir sem eru efstir á þessum lista hafa skilað miklu til baka, bæði fjárhagslega og menningarlega.“

Báðir voru sammála um að samantekt Samtaka Skattgreiðenda væri frábær og þörf.

Ekki það fyrsta sem ætti að skera niður

Í lok þáttarins voru þeir sammála um að ritlaun væru ekki sá liður sem ætti að vera efst á niðurskurðarlista:
„Við erum nískir á ríkisútgjöld í Harmageddon en þegar eitthvað skilar sér svona augljóslega til baka, þá erum við að tala um fjárfestingu, ekki eyðslu,“ sagði Frosti.

„Þetta er ekki eitthvað sem á að vera í fyrsta sæti þegar við förum að skera niður,“ bætti Ingimar við.

Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt sjá allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing