Harvard biðst afsökunar á gyðingahatri á háskólasvæðinu – Gert til að geðjast Trump?

Harvard-háskóli birti á þriðjudag tvær ítarlegar skýrslur sem skólinn segir varpa ljósi á víðtæka fordóma gagnvart bæði gyðingum og múslimum innan háskólasamfélagsins.

Tímasetningin á þessu skýrslum er líklega ekki tilviljun en bandaríkjastjórn hefur skrúfað fyrir fjármagn til skólans, meðal annar fyrir það að koma ekki í veg fyrir fordóma gegn ákveðnum hópum á háskólasvæðinu.

Auglýsing

Skýrslurnar eru byggðar á hundruðum viðtala við nemendur og starfsfólk og gefa ákveðna mynd af samskiptum á milli hópa eftir árás Hamas á Ísrael þann 7. október.

„Ég biðst afsökunar á þeim tilvikum þar sem við stóðumst ekki þær kröfur sem við setjum okkur sjálf sem samfélag,“ sagði Alan Garber, forseti Harvard, í bréfi sem fylgdi skýrslunum.

Meginniðurstöður úr könnun

Skýrslan um gyðingahatur bendir á að slík mismunun sé oft útilokuð úr umræðu um fordóma, ólíkt kynþáttahyggju eða útlendingahatri.

Þar var meðal annars vísað til atviks þar sem nemandi af gyðingaættum mátti ekki minnast á hetjudáð afa síns í Helförinni í ræðu vegna þess að hún tengdist Ísrael.

Skýrslan greinir einnig frá „nýrri bylgju“ baráttu fyrir málefnum Palestínu innan háskólans, þar sem mótmæli og pólitísk inngrip í viðburði eru orðin algeng.

Hvað múslima og araba varðar lýstu margir nemendur ótta og einangrun, auk þess sem þeir upplifðu að háskólinn hefði brugðist í viðbrögðum sínum við atvinnumissi sem nemendur skólans höfðu orðið fyrir vegna „trúarlegrar þáttöku“ sem ekki er skilgreind nánar.

Tillögur um úrbætur

Skýrslan leggur fram átta tillögur, meðal annars að meta betur hæfni umsækjenda til að takast á við skoðanaágreining, sem þegar hefur verið tekið upp með nýjum ritgerðarspurningum við inntöku.

Höfundar skýrslanna taka fram að markmiðið hafi verið að hlusta á samfélagið en ekki að sannreyna frásagnirnar.

Því er ekkert vitað um hvaða sögur eru sannar og hverjar eru skáldskapur einn.

Trump frysti fjárframlög til Harvard

Fyrr í þessum mánuði ákvað ríkisstjórn Donalds Trump að frysta 2,2 milljarða dala styrki til Harvard vegna ágreinings um mótmæli á háskólasvæðinu.

Trump hefur einnig hótað frekari niðurskurði og krefst breytinga á stjórn skólans og inntökureglum til að sporna gegn „ hatri gegn gyðingum“.

Harvard hefur neitað að samþykkja skilmála stjórnvalda og lýst því yfir að háskólinn muni ekki semja um sjálfstæði sitt eða stjórnarskrárvarin réttindi en þessar nýlegu skýrslur benda til þess að skólinn sé ekki eins harður á þeirri afstöðu sinni og þeir halda fram opinberlega.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing