Það bar ýmislegt á góma hjá lögreglunni í gærkvöld og í nótt. 6 gista fangageymslur eftir nóttina. Einn þeirra er maður sem var handtekinn í miðborginni fyrir að fara ekki eftir fyrirmælum og segja ekki til nafns en hann var einnig mjög ölvaður
Unglingur hrækti á lögreglumann í miðbænum og var hann handtekinn en seinna sótti forráðamaður hans og fylgdi honum heim. Tveir unglingar voru handteknir fyrir slagsmál og fíkniefnamisferli.
Tilkynnt var um heimilisófrið í Garðabæ og í Kópavogi og er einn í fangaklefa eftir slíka uppákomu. Einnig var einn handtekinn eftir heimilisofbeldi í Breiðhotli og fékk að gista fangageymslur.