Látinn er bandaríski vistfræðingurinn Paul R. Ehrlich, 93 ára gamall. Árið 1968 gaf hann út bókina Fólksfjölgunarsprengjan (e. The Population Bomb) sem sló í gegn, einkum meðal þeirra sem töldu að kapítalismi og hagvöxtur gengju á auðlindir jarðar þannig að heimsbúskapurinn gæti ekki brauðfætt íbúa jarðar til lengdar. Afleiðingin yrði hungurdauði milljóna manna.
Á árunum eftir metsölubók Ehrlich komu út fjölmargar bækur með svipaðan boðskap, að fyrirsjáanlega myndi offjölgun mannkyns leiða til tortímingar siðmenningarinnar eins og við þekkjum hana. Á íslensku voru meðal annars gefnar út þýddar bækur á borð við Endimörk vaxtarins og Heimur á helvegi sem fjölluðu um sömu hugmyndir.
Mannkyn tvöfaldaðist – hungursneyð kom ekki
Þegar Ehrlich skrifaði bókina um yfirvofandi fólksfjölgunarvá taldi mannkyn um 3,5 milljarða. Nú eru íbúar jarðar yfir átta milljarðar. Mannkyninu tókst á þessum tíma að auka matvælaframleiðslu verulega og brauðfæða sífellt fleiri.
Netmiðill sem sérhæfir sig í loftslagsmálum hefur bent á að hækkun koltvísýrings (CO₂) í andrúmslofti hafi aukið uppskeru víða og gert jörðina grænni, sem aftur hafi aukið matvælaframleiðslu á heimsvísu.
Þrátt fyrir að spár Ehrlich um hungurdauða milljóna gengju ekki eftir var hann lengi vel í hávegum hafður í umræðu um umhverfis- og fólksfjölgunarmál, að því er fram kemur í andlátsfrétt Telegraph.