Hetja bjargar barni sem hljóp út á götu frá því að verða fyrir bíl

Snarræði verslunarstarfsmanns kom í veg fyrir mögulegan harmleik þegar þriggja ára stúlka hljóp skyndilega út á umferðargötu í Puebla í Mexíkó.

Öryggismyndavél náði öllu atvikinu á myndband. Þar sést stúlkan hlaupa í átt að götunni á meðan kona reynir að elta hana en konan dettur. Luis Enrique Cruz sér hvað er að gerast og hleypur af stað á eftir barninu.

Auglýsing

Brást við á sekúndubroti

Luis nær stúlkunni rétt við veginn og kemur henni úr hættu um leið og bifreið ekur fram hjá. Hann setti sjálfan sig í verulega hættu við björgunina en hvorki hann né barnið virðast hafa slasast.

Luis, sem er 34 ára og starfar sem verslunarstjóri hjá Super Rey del Ahorro, sagðist síðar ekki hafa haft tíma til að hugsa.

„Þetta voru bara ósjálfráð viðbrögð. Ég vildi bara bjarga stúlkunni,“ sagði hann í viðtali við mexíkóskan fjölmiðil.

Hann sagðist hafa gert sér grein fyrir því eftir á að hann hefði einnig lagt eigið líf í hættu. Atvikið væri jafnframt áminning um hversu mikilvægt væri að fylgjast stöðugt með ungum börnum.

Útnefndur verslunarstjóri ársins

Myndbandið fór hratt í dreifingu og fyrirtækið ákvað að heiðra Luis fyrir snarræðið. Honum voru veitt 20 þúsund mexíkóskir pesar í verðlaun og hann útnefndur verslunarstjóri ársins.

Fyrirtækið sagði Luis vera hetju og að snarræði hans hefði komið í veg fyrir hörmulegt slys.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing