Kona sem enn hefur ekki verið nafngreind bjargaði lífi tveggja barna með ótrúlegu snarræði þegar skyndiflóð skall á bænum Betrawati í Nepal.
Björgunin náðist á myndband. Þar sést konan grípa í bæði börnin og hlaupa með þau upp bratta brekku. Örfáum sekúndum síðar kemur gríðarlegur flóðveggur og flæðir yfir staðinn þar sem þau höfðu staðið stuttu áður.
Sleppti þeim aldrei
Börnin eiga erfitt með að fóta sig í brekkunni og hrasa í hamaganginum. Konan sleppir þó hvorugu þeirra heldur togar þau aftur á fætur og rífur þau áfram.
Það mátti ekki tæpara standa.
Nánast um leið og þau eru komin úr hættu ryðst brúnn vatnsflaumurinn yfir veginn með aur, grjóti og braki.
Myndbandið hefur vakið mikla athygli enda mátti engu muna.
Ekki hefur verið staðfest hver konan er en eflaust eru margir sem vilja vita nafn hetjunnar.
Þúsunda enn saknað
Flóðin hófust 26. ágúst eftir að jökull hrundi í fjalllendi við landamæri Nepal og Tíbets. Flóðbylgja af vatni, ís, grjóti og aur fór niður fljót og sópaði með sér heilu byggðunum.
Fleiri en 1.250 hafa fundist látnir og yfir 4.200 er enn saknað. Þúsundir hafa misst heimili sín.