Hjalti Úrsus segir ungmennafélagsandann í hættu: „Þrengt að frjálsum íþróttum“

Hjalti Árnason, betur þekktur sem Hjalti Úrsus og frambjóðandi Miðflokksins í Mosfellsbæ, segir að ungmennafélagsandinn sé í útrýmingarhættu á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í grein sem hann skrifar og birt var á Vísi.

Hjalti gagnrýnir þar þróun síðustu ára þar sem hann telur að frjálsum íþróttum hafi verið ýtt til hliðar á kostnað boltagreina og atvinnuvæðingar íþróttastarfs.

Auglýsing

Hann bendir á að frjálsíþróttaaðstaða hafi verið skert bæði í Laugardalnum og í Mosfellsbæ.

„Nú hefur frjálsum íþróttum verið úthýst úr Laugardalnum, einnig hefur fullur löglegur frjálsíþróttavöllur verið fjarlægður að Varmá í Mosfellsbæ,“ skrifar Hjalti og segir að með þessum ákvörðunum hafi þrengst verulega að frjálsum íþróttum á höfuðborgarsvæðinu.

Segir forvarnargildið hafa veikst

Í greininni rifjar Hjalti upp hefðir ungmennafélagshreyfingarinnar og vísar í lög UMFÍ þar sem meðal annars sé lögð áhersla á fræðslu og forvarnir gegn neyslu skaðlegra efna.

Að mati Hjalta hafi íþróttahreyfingin fjarlægst þessi gildi.

Hann gagnrýnir meðal annars aukna tengingu áfengis og íþróttaviðburða, sérstök herrakvöld og þorrablót í íþróttamannvirkjum, auk þess sem hann segir að ungmenni séu í auknum mæli flokkuð niður eftir getu.

„Miskunarlaust er valið í aðallið og öðrum hafnað,“ skrifar hann og segir þátttöku barna og ungmenna eiga að vera í forgrunni en ekki eingöngu árangur eða afrek.

Kallar eftir endurvakningu ungmennafélagsandans

Hjalti segir þróunina einnig tengjast aukinni fjárhyggju innan íþróttahreyfingarinnar og nefnir meðal annars ofurlaun þjálfara og leikmanna í efstu deildum.

Í lok greinarinnar kallar hann eftir því að hinn „sanni ungmennafélagsandi“ verði endurvakinn á höfuðborgarsvæðinu og vísar í kjörorð UMFÍ:

„Íslandi allt.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing