Hljómsveitin Ég kemur saman á ný og heldur sérstaka tónleika í Bæjarbíó, Hafnarfirði þann 30. október 2025, til heiðurs leiðtoga, söngvara, laga- og textahöfundi sveitarinnar, Róberti Erni Hjálmtýssyni sem féll óvænt og skyndilega frá í júní 20224.
Á tónleikunum verður plata sveitarinnar Plata ársins flutt en hún fagnar 20 ára afmæli í ár og í tilefni þess er platans gefin út á vinyl í fyrsta skipti. Einnig verða önnur vinsæl lög frá ferli Ég flutt.
Fjölmargir minnast Róberts Arnar: „Einstakur tónlistarmaður“
Ég var einstök sveit og munaði þar mest um ótrúlega sýn Róberts á hlutina. Gagnrýnendur lofuðu sveitina jafnan í hástert, m.a. skrifaði Arnar Eggert Thoroddsen þessi orð um Róbert: „…þeir fáu sem hlýtt hafa á tónlist hans og sótt tónleika tilbiðja hann sem snilling (ég þar með talinn) á meðan restin af heiminum missir því miður af.“
Nú er lag að bæta úr þessu í Bæjarbíói! Meðlimir Ég fá þá til liðs við sig fjölda gestasöngvara, þar á meðal verða Valdimar Guðmundsson, Eyþór Ingi, Heiða Eiríks, Bjarki Sig, Ari Eldjárn, Örn Eldjárn og Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi).
Unnendur hljómsveitarinnar Ég og Róberts Arnar, sem var einstakur tónlistarmaður og frábær manneskja, ættu ekki að láta þennan viðburð framhjá sér fara en miðasala er þegar hafin inn á Tix.is